<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:38:58" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:40:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:38:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég verð að segja að mér blöskraði framsaga
    hæstv. utanríkisráðherra um þetta mál; hálfsannleikur og sums staðar
    hreinar blekkingar um málavexti bókunar 35 og EES-samningsins. Ég saknaði
    þess að heyra ekki hæstv. utanríkisráðherra fjalla um aðdraganda að
    EES-samningnum og einmitt þau skilyrði og þann sáttmála sem var gerður hér
    þegar EES-samningurinn var samþykktur hér með þeim skilyrðum til að hann
    stæðist stjórnarskrá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra, af því að henni er
    tíðrætt um fæðingarorlofsdóminn sérstaklega og vitnar hér orðrétt í
    dómsniðurstöðu Hæstaréttar sem nákvæmlega felur ekki í sér að Hæstiréttur
    sé að senda þau skilaboð eða að segja það að bókun 35 hafi ekki verið
    innleidd réttilega. Það kemur ekkert fram í dómi Hæstaréttar um það. Það
    kemur ekkert fram um það að bókunin sé ekki innleidd réttilega
    <ns:bjalla/> heldur er leyst úr þeim réttarágreiningi sem lagt var fyrir í
    því máli. Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra: Telur hún að
    fæðingarorlofsmálið hefði farið öðruvísi ef þetta frumvarp hefði verið
    orðið að lögum? Treystir <ns:bjalla/> hæstv. utanríkisráðherra sér til að
    fullyrða það?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>