<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:40:35" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:41:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:40:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fæðingarorlofsmálið hefði náttúrlega aldrei
    komið til ef Alþingi Íslendinga hefði staðið sig í stykkinu og innleitt
    bókun 35. Síðan er spurt: Af hverju ætti að þurfa stjórnarskrárbreytingu
    til að breyta lögskýringarreglum landsréttar? Þær eru óskráðar og ástæðan
    fyrir því að Hæstiréttur gat ekki á endanum framfylgt bókun 35 í máli Önnu
    Bryndísar var sú að forgangsreglan hafði ekki verið lögfest eins og við
    þekkjum og þess vegna erum við að ræða þetta, ekki af því að hana vantaði
    í stjórnarskrá heldur af því við höfðum ekki lögfest hana hér á Alþingi
    Íslendinga. Af hverju ekki að verjast? var spurt hér áðan og mér heyrist
    hv. þingmaður vera að gera það líka. Hæstiréttur hefur staðfest að
    forgangsreglan er ekki lögfest líkt og bókun 35 kveður á um og stefna ESA
    snýr að því en ekki öðru.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>