<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:41:54" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:43:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:41:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra fullyrðir hér að
    fæðingarorlofsmálið hefði ekki komið til hefði bókun 35 verið innleidd.
    Staðreyndin er sú að Ísland hafði innleitt reglugerð Evrópusambandsins um
    samræmingu almannatryggingakerfisins fyrir löngu. Það vissi hins vegar
    enginn, ekki einu sinni Evrópudómstóllinn eða Evrópusambandslöndin hvað
    fólst í þeirri reglugerð. Íslenskir dómstólar þurftu meira að segja að
    spyrja EFTA-dómstólinn um mögulega þýðingu þessarar reglugerðar, þannig að
    það er ekki rétt sem hæstv. ráðherra segir um þetta atriði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar hins vegar að spyrja hann um aðra blekkingu og
    rangfærslu sem hún hefur haldið fram og sent út myndband á samfélagsmiðlum
    um litla stúlku sem þurfti að sækja rétt sinn vegna sælgætiskaupa í
    sjoppu. Hún hafi, vegna skorts á bókun 35, ekki getað höfðað mál nema á
    hendur litlu sjoppunni. Samt liggur fyrir í málinu að barnið höfðaði málið
    gegn Biðskýlinu Njarðvík og CU2 ehf. og voru dæmdar bætur úr hendi beggja,
    þ.e. söluaðila og framleiðanda. Það liggur fyrir í málinu. Af hverju fer
    hæstv. ráðherra með þessa rangfærslu hér og lætur að því liggja
    <ns:bjalla/> að þetta mál snúist um réttindi lítilla barna þegar síðan í
    kjölfarið lögum um skaðabótaábyrgð var breytt <ns:bjalla/> til samræmis
    við Evrópusambandsreglur og réttarvernd litlu stúlkunnar í þessu máli
    skert stórum? Í dag gæti hún ekki einu sinni höfðað mál á hendur
    sjoppunni.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti vill ítreka ábendingu um að virða
    tímamörkin sem eru knöpp í þessum andsvörum.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>