<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:43:42" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:45:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:43:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það síðasta. Stúlkan hefði alltaf fengið bætur.
    En skýringin … <ns:frammíkall/> — Já, hún fékk bætur en skýringin er ekki
    sú af hverju bara hún fékk frá söluturninum … <ns:frammíkall skst="SÁA">Ekki frá söluturninum.</ns:frammíkall> — Ekki frá söluturninum
    heldur frá framleiðandanum. <ns:frammíkall skst="SÁA">Báðum.</ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég skil vel af hverju hv. þingmenn Miðflokksins og formaður
    þingflokks þeirra eru mjög órólegir. Það sem Miðflokkurinn er að leggja
    hér til er að það verði ekki Alþingi Íslendinga sem ákveði um niðurstöðu í
    þessu máli, að það verðum ekki við sjálf sem ákveðum hvaða lög eigi að
    gilda hér á Íslandi heldur vill Miðflokkurinn hér á Íslandi fara með málið
    til útlanda og láta aðra ákveða það sem við getum ákveðið í þessum þingsal
    <ns:frammíkall>Af hverju …?</ns:frammíkall> Hver er nú þjóðernisástin í
    þessu?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Niðurstaða nýlegra dóma Hæstaréttar er skýr og afdráttarlaus og
    hún sýnir að 3. gr. EES-laganna er lögskýringarregla en ekki
    forgangsregla. Hæstiréttur segir að það sé ekki í samræmi við bókun 35,
    það er alveg skýrt. Það er ekki í samræmi við bókun 35 og það er einmitt
    vandinn að þegar túlkun dugar ekki tryggir núverandi regla ekki þann
    forgang sem <ns:bjalla/> bókun 35 gerir. Þess vegna er ég að segja, eins
    og til að mynda dæmið með Önnu Bryndísi, að þá erum við ekki að tryggja
    <ns:bjalla/> réttindi einstaklinga og erum ekki að tryggja réttindi þeirra
    sem reka fyrirtæki hérna, ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>