<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:45:47" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:46:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:45:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra
    fyrir sína framsögu í þessu máli. Ég vil geta þess í upphafi að málið
    hefur tekið mikið pláss í umræðunni. Ég hygg að ástæða þess sé annars
    vegar sú að stjórnarliðar tala kannski hér eins og um sé að ræða eina
    allsherjarlausn á öllum þeim vandamálum sem fylgja því að samræma íslenska
    löggjöf við EES-réttinn og hins vegar að þeir sem tortryggja málið óttast
    að í því felist einhvers konar brot á stjórnarskránni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil spyrja hæstv. ráðherra út í það hvort hún sé ekki sammála
    mér í því að hér eftir sem hingað til skipti mestu að innleiða
    EES-reglurnar í innlend lög, þ.e. ég tel að réttaráhrif þessa frumvarps
    séu mjög takmörkuð. Þetta verði takmörkuð tilvik sem ættu í raun og veru
    ekki að koma upp nema okkur hafi einmitt mistekist hér í þessu húsi að
    færa EES-reglurnar, eins og okkur ber að gera, inn í innlend íslensk
    lög.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>