<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T14:47:06" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:48:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:47:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrirspurnina. Ég varð svolítið
    vongóð þegar hv. þingmaður byrjaði að tala um að þetta mál hefði tekið
    pláss og ég hugsaði: Já, nú eru menn komnir með einhverja
    raunveruleikatengingu aftur í söguna. Af því að það er nákvæmlega það sem
    hefur gerst að Alþingi Íslendinga hefur ekki náð að klára þetta mál. Fyrri
    ríkisstjórnir undir forystu Sjálfstæðisflokksins náðu ekki heldur að gera
    það. Þannig að mér finnst mistökin felast í því að Alþingi Íslendinga nái
    ekki að klára þetta mál, þetta réttindamál sem tengist bókun 35, með
    sómasamlegum hætti héðan úr þingsal.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Niðurstaða Hæstaréttar frá því fyrir tveimur vikum segir að
    íslenskum stjórnvöldum hafi átt að vera þetta ljóst í rauninni frá 2011,
    þannig að þeir þingmenn sem m.a. töluðu hér á undan eru í rauninni að tala
    í þversögn við það sem Hæstiréttur segir. Þannig að mér finnst við hafa
    alla þessa leiðsögn í íslensku samfélagi frá okkar grundvallarstoðum þegar
    við horfum á þrískiptingu ríkisvaldsins og þess vegna segi ég: Mér finnst
    meiri bragur á því að framkvæmdarvaldið leggi fram þetta frumvarp, með
    vísun í Hæstarétt, <ns:bjalla/> og þá kemur löggjafarvaldið og segir: Já,
    við ætlum að klára þetta mál með sómasamlegum hætti, það er á okkar ábyrgð
    <ns:bjalla/> og við ætlum að uppfylla okkar alþjóðlegu skuldbindingar sem
    tengjast EES-samningnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>