<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:48:37" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 14:49:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:48:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þetta var svo sem ekki svarið sem ég var að leitast
    eftir. Enn og aftur finnst mér hæstv. ráðherra gera helst til of mikið úr
    efni þessa frumvarps og bókunarinnar. Ég var að freista þess að fá
    staðfestingu á því, sem er fullkomlega eðlilegt, að verkefnið væri
    auðvitað fyrst og fremst að innleiða EES-reglurnar sjálfar,
    efnisreglurnar, ekki þessa bókun, þ.e. hún er ekki aðalatriðið. Hún tekur
    eingöngu til þegar okkur hefur mistekist að samræma þetta tvennt, þegar
    það eru til tvær íslenskar innlendar lagareglur sem vegast á. En hæstv.
    utanríkisráðherra sagði hér að Alþingi hefði ekki tekist að klára þetta
    mál og í því sambandi vil ég vísa í ummæli stjórnarmanns ESA, Árna Páls
    Árnasonar, sem sagði í viðtali við Ríkisútvarpið 30. september að hann
    hefði látið vita á fundi með fulltrúum allra flokka að mál yrði höfðað ef
    frumvarpið yrði ekki afgreitt á vorþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra út í þetta: Ef þetta lá fyrir,
    hvers vegna var málið þá ekki klárað núna í vor?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>