<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T14:51:39" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:07:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T14:51:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hér er enn á ný rætt um bókun 35. Ég lýsti því
    í andsvari við hæstv. utanríkisráðherra að mér blöskraði málflutningur
    hennar í framsögu hennar en þegar á leið á andsvörin skaut þeirri hugsun
    reyndar niður í kollinn á mér að hæstv. utanríkisráðherra þekkti bara
    raunverulega hvorki haus né sporð á þessu máli og þeim dómsmálum sem hún
    hefur verið að tína til og henda inn í umræðuna hér sem rökstuðningi fyrir
    því að þetta tiltekna frumvarp þurfi að ná fram að ganga og engan tíma
    megi missa í þeim efnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Bókun 35 er áhugavert mál og það er skemmtilegt, þótt almenningur
    og jafnvel fólk hér innan dyra reyni að telja sjálfu sér og öðru fólki trú
    um að þetta sé ofboðslega leiðinlegt mál. Þetta er ekki einfalt mál en það
    er þó ekki sérstaklega flókið. Það eru auðvitað nokkrir íslenskir dómar,
    þeir eru kannski teljandi á fingrum beggja handa, þar sem bókun 35 er
    nefnd eða hefur verið fjallað um. Þeir dómar eru í sjálfu sér ekki flóknir
    og nýjustu dómar sem hafa verið að falla þar sem bókun 35 hefur borið á
    góma eru á engan hátt óvæntir eða ófyrirséðir, á engan hátt, a.m.k. ekki
    þeim sem starfa í lögfræði. Fyrir þá sem eru lögfræðingar eða hafa fylgst
    með dómaframkvæmd og dómum og eru ágætlega að sér í lögfræði eru þessir
    dómar á engan hátt óvæntir. Ég nefni sérstaklega, af því að ég ætla að
    fjalla nánar um þá, annars vegar fæðingarorlofsdóminn sem hefur verið
    mikið í umfjöllun og svo nýlega hefur verið hent inn í umræðuna dómi sem
    fjallar um málaferli lítillar stúlku, eins og það er orðað, til að gera
    málið svona vænlegra til árangurs fyrir þá sem eru að vinna þessu máli
    fylgis, gegn lítilli sjoppu, eins og það er líka orðað, vegna tjóns sem
    stúlkan varð fyrir þegar hún keypti sælgæti og henni varð eitthvað meint
    af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langar að nefna áður en ég vík að því það sem skiptir
    kannski mestu máli, þ.e. aðdragandann að EES-samningnum. Þegar við
    skrifuðum undir samninginn árið 1992 hafði árin þar á undan verið mikið
    fjallað um það hvort EES-samningurinn myndi standast stjórnarskrá. Það
    liggur fyrir í EES-samningnum að það er verið að framselja ákveðið vald
    utan frá Íslandi. Þetta var mikið reifað. Niðurstaðan varð sú að komast að
    þeirri niðurstöðu að það valdaframsal sem fælist í EES-samningnum myndi
    sleppa gagnvart stjórnarskránni að því gefnu að m.a. bókun 35 yrði ekki
    innleidd. Um þetta var samstaða með mönnum og Alþingi á þessum tíma, að
    bókun 35 yrði ekki innleidd eins og hún lá fyrir og innleiddum reglum
    EES-réttarins sem eru réttilega innleiddar í íslenskan rétt yrðu ekki
    veitt forgangsáhrif á aðrar íslenskar reglur. Um þetta voru menn sammála.
    Þetta hefur verið athugasemdalaust af hálfu viðsemjenda okkar, sem er
    Evrópusambandið, í 25 ár, hátt í 30 ár, athugasemdalaust og hefur ekki
    valdið neinum vandkvæðum. Þeir dómar þar sem menn hafa reynt að beita
    fyrir sig bókun 35 eru teljandi á fingrum handa okkar. Það má segja að þar
    hafi kannski verið skotið út í loftið en það er eðlilegt að menn tefli
    öllu fram í málaferlum. Ég held að flestir lögmenn hafi áttað sig á því að
    bókun 35 er ekki í gildi hér á landi og þess vegna tómt mál í rauninni að
    bera slíkt undir dómstóla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta finnst mér skipta miklu máli vegna þess að ef aðstæðurnar
    eru breyttar núna, ef allt í einu nú kemur ríkisstjórn eða Alþingi og
    ætlar að segja: Nú eigum við að innleiða bókun 35, þá þurfum við að fara
    aftur til ársins 1990 þegar við vorum að ræða þessi mál. Hvað hefur
    breyst? Hefur stjórnarskránni okkar verið breytt til þess að leyfa slíkt
    valdaframsal? Nei. Hæstv. utanríkisráðherra nefndi í framsögu sinni Noreg
    og benti á það sem er alveg rétt, Noregur er fullvalda ríki og Norðmenn
    hafa innleitt bókun 35. Það er líka alveg rétt. En Noregur tók bara
    sérstaka ákvörðun um það árið 1962 að breyta stjórnarskrá sinni þannig að
    hún heimilaði valdaframsal til alþjóðastofnana. Það var gert árið 1962.
    Menn og ríki eru alveg fullvalda um að gera það. Við getum breytt
    stjórnarskránni og ákveðið að framselja vald til alþjóðastofnana. Við
    getum líka ákveðið að hætta að vera þjóð. Við getum tekið alls konar
    ákvarðanir af því að við erum fullvalda og sjálfstæð þjóð. Spurningin er
    bara: Hversu langt viljum við ganga? Árið 1990 vildum við ekki ganga svo
    langt að innleiða bókun 35. Þetta var mikið rætt. Hæstv. utanríkisráðherra
    nefnir hérna einn eða tvo lögfræðinga sem eru tilbúnir auðvitað að skrifa
    undir það: Þetta sleppur, þetta verður ekki vandamál, stjórnarskráin
    truflar þetta ekki. Við getum líka nefnt fleiri lögfræðinga, júrista,
    lögmenn sem benda á hið gagnstæða. Það er sú umræða sem þarf að fara fram
    hér á þinginu. Þessi umræða þarf að fara fram á þinginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. forsætisráðherra nefndi að hún vænti þess að þetta frumvarp
    næði fram að ganga þannig að þessi forgangsregla nái fram að ganga og,
    eins og hún orðaði það, í samræmi við íslenska stjórnskipan. Ég hefði
    viljað fá og þætti vænt um ef hæstv. utanríkisráðherra tæki til máls í
    sérstakri ræðu bara til þess að ræða þetta eina atriði, til að ræða það
    hvernig þessi forgangsregla bókunar 35 er í samræmi við íslenska
    stjórnskipan. Þetta er stórt atriði og á þessu steytir, a.m.k. frá mínum
    bæjardyrum séð og af hálfu Miðflokksins. Þetta er stóri
    ásteytingarsteinninn. Frá mínum bæjardyrum séð tek ég undir með júristunum
    frá 1990 um að slíkt valdaframsal gangi ekki að óbreyttri stjórnarskrá. Ef
    við viljum breyta stjórnarskránni að þessu leyti þá skulum við taka þá
    umræðu en við förum ekki fram hjá stjórnarskránni með þessum hætti. Þetta
    er lykilatriði. Það að veita almennum lögum forgang, einhverjum sérstökum
    almennum lögum, í þessu tilfelli lögum sem eru að innleiða EES-réttinn,
    veita þeim hærri rétthæð í öllu réttarheimildasafninu, þ.e. veita
    tilteknum almennum lögum forgang á önnur almenn lög — þetta stenst
    ekki.</ns:mgr>

    <!--segir "Þetta stangast ekki." þarna í  lok mgr./st.-->

    <ns:mgr>Mér hefur þótt forvitnilegt að fylgjast með því í lagakennslu
    undanfarin ár við báða háskólana að þrátt fyrir mikla umræðu um bókun 35
    hér og í þjóðfélaginu er ekki enn þá verið að víkja að því einu orði
    gagnvart nemendum sem eru að læra lögfræði, unga fólkinu okkar sem er að
    fara að útskrifast og er að útskrifast. Það er ekki vikið að því einu orði
    hvernig réttarheimildafræðin muni taka stórkostlegum breytingum, nái þetta
    frumvarp fram að ganga. Mér finnst það áhugavert. Mér finnst líka
    áhugavert hversu fáir í rauninni lögfræðingar hafa tekið til máls í
    þjóðmálaumræðunni um þetta mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En af því að tíminn líður hér þá kem ég aðeins að
    fæðingarorlofsmálinu. Í því máli er lagt fyrir Hæstarétt að skera úr um
    ágreining. Krafa stefnanda í því máli er að einhver önnur regla gildi
    heldur en þau skýru ákvæði íslensku laganna sem voru í gildi þá. Vel að
    merkja þá er rétt að hafa það í huga að Ísland hafði á þessum tíma og
    hefur fyrir löngu innleitt reglugerð Evrópusambandsins um samræmingu
    almannatryggingakerfa. Það var gert fyrir löngu, fyrir mörgum árum,
    áratugum síðan. Svo liðu nokkur ár og Evrópusambandslöndin túlkuðu þessa
    reglugerð með mismunandi hætti þannig að Evrópudómstóllinn var krafinn
    svara um hvað fælist í þessari reglugerð um samræmingu
    almannatryggingakerfa. Fólk var að flytja á milli Danmerkur og Þýskalands
    og Þýskalands til Sviss eða frá Þýskalandi til Sviss og það lagði þessa
    spurningu fram og vildi fá svona bætur eins og í fæðingarorlofi, færa
    bætur úr velferðarkerfinu milli landa. Evrópudómstóllinn komst að
    einhverri niðurstöðu mörgum árum eftir að reglugerðin var sett og þá er
    spurningin: Á Ísland að fylgjast með einhverri réttarframkvæmd hjá
    Evrópudómstólnum og hvað er að gerast þar og hvernig reglugerðir
    Evrópusambandsins eru túlkaðar frá degi til dags? Svo hafa fallið margir
    dómar hjá Evrópudómstólnum um þetta mál, alls konar útfærslur. Það er ekki
    enn þá alveg búið að svara því, held ég, með hvaða hætti menn ætla að
    reikna bæturnar þótt í þessu íslenska fæðingarorlofsdæmi hafi aðallega
    verið velt upp spurningunni um ávinnslu réttinda og tímamörk en ekki við
    hvaða laun ætti að miða. Hefði t.d. átt hér á Íslandi, vegna þessa máls,
    að breyta t.d. fæðingarorlofslögunum þannig núna — mér sýnist miðað við
    dóma Evrópudómstólsins að það væri heimilt að miða við launin sem
    læknirinn hafði í Danmörku en ekki háu launin sem læknirinn hafði í nokkra
    mánuði á Íslandi. Þetta er spurningin sem löggjafinn þarf að taka upp núna
    ef það liggur fyrir okkur að þurfa að borga bætur eða greiðslur úr
    Fæðingarorlofssjóði til fólks sem er að vinna í lágtekjuríkjum en kemur
    til Íslands og vinnur kannski í eina viku á Íslandi og öðlast rétt á
    greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði miðað við reiknaðar tekjur eins og það
    hefði haft á Íslandi í 12 mánuði en ekki tekjurnar í 12 mánuði í Danmörku
    eða Póllandi eða Portúgal. Þetta er spurning sem löggjafinn verður að taka
    upp þegar svona dómar falla og svona ágreiningur kemur upp. Það er ekkert
    að því, það er bara eðlilegur ágreiningur, eðlileg lögfræðileg álitaefni
    sem koma upp og menn þurfa að taka upp.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Bókun 35 hefði engu máli skipt í fæðingarorlofsmálinu þótt við
    værum búin að innleiða hana vegna þess að það var alltaf ágreiningur um
    hvernig reglugerðin var innleidd á Íslandi. Hún var ekki innleidd
    réttilega. Og eins og þið sjáið í frumvarpinu þá varðar bókun 35 bara
    innleiddar gerðir eða íslensk lög sem byggja á EES-gerðum sem eru
    réttilega innleiddar. Reglugerð Evrópusambandsins um samræmingu
    almannatryggingakerfa var ekki réttilega innleidd á Íslandi. Þess vegna
    hefði þessi ágæti læknir líka þurft að höfða mál óháð bókun 35.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hitt málið sem mig langar að nefna og mér finnst það verra vegna
    þess að ég tel að hæstv. utanríkisráðherra sé þar að blekkja verulega í
    umræðu um réttindi einstaklinga vegna bókunar 35. Hún nefnir
    sælgætisbúðarmálið. Unga stúlkan þar höfðaði mál á þeim tíma samkvæmt
    þágildandi lögum um skaðsemisábyrgð. Hún höfðaði mál á hendur sjoppunni og
    innflytjanda sælgætisins sem í skilningi skaðsemisábyrgðarlaga er
    framleiðandi. Hún höfðaði mál á hendur þeim báðum, eðlilega, og fékk
    dæmdar bætur úr hendi beggja, úr hendi sjoppunnar og innflytjandans sem er
    framleiðandi, in solidum, þ.e. þeir báru samábyrgð á bótunum. Trúlega
    hefur tryggingafélag framleiðandans á endanum borgað það, ég veit ekki
    hvernig það var, það er aukaatriði. Stúlkan höfðaði mál á hendur báðum.
    Íslensku lögin þágildandi tryggðu stúlkunni og öllum neytendum þennan
    mikla rétt, að geta höfðað mál á hendur dreifingaraðila sem er sjoppa og
    innflytjanda sem telst framleiðandi. Nokkrum árum seinna — sjoppan var
    auðvitað ekki ánægð með að þurfa að sitja uppi með þetta því að sjoppan
    vissi að í Evrópusambandinu giltu þær reglur að sjoppur væru bara ekki
    ábyrgar nema undir mjög þröngum skilyrðum. Sjoppan fór að djöflast í þessu
    máli og benti á þetta og íslensku lögunum um skaðsemisábyrgð var breytt
    árið 2014, 10. gr., þannig að kæmi þetta sama mál upp í dag gæti stúlkan
    ekki höfðað mál á hendur sjoppunni heldur yrði að láta sér nægja
    framleiðanda. Þannig eru reglurnar í Evrópusambandinu. Það er allt í lagi
    með það. Evrópusambandsreglurnar vernda nefnilega stundum réttindi
    fyrirtækja, stundum sérstaklega réttindi einstaklinga og stundum fer þetta
    saman. En stundum vegast á réttindi einstaklinga og fyrirtækja. Það er
    þess vegna rangt að halda því fram að bókun 35 snúist bara um réttindi
    einstaklinga. Stundum skarast þetta á og við höfum dæmi í dómasafni
    <ns:bjalla/> Hæstaréttar Íslands í máli nr. 79/2010, um nákvæmlega þetta.
    <ns:bjalla/> Ég frábið mér rangan málflutning hæstv. utanríkisráðherra í
    þessum efnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>