<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T15:07:14" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:09:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:07:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara í það að leiðrétta allar
    rangfærslurnar sem voru hér hjá hv. þingmanni. En ég vil fá að spyrja hvað
    það sé sem styðji þá fullyrðingu að Alþingi hafi alltaf verið sammála um
    að fullgilda EES-samninginn á sínum tíma, eins og hún sagði, gegn því að
    brjóta hann. Það var hart tekist á um samninginn á sínum tíma eins og við
    vitum. Það var ágreiningur um samþykktina en nefndarálit þáverandi
    utanríkismálanefndar mælir einmitt fyrir framfylgd samningsins með
    setningu laga frá 1993, sem við þekkjum. Björn Bjarnason hefur m.a.
    ítrekað sagt að þeirra skilningur hafi verið að þau hefðu verið að
    innleiða bókun 35 réttilega á sínum tíma og hefðu þau áttað sig á því að
    svo væri ekki hefði það verið gert með öðrum hætti. Ég vil gjarnan fá
    viðbrögð við þessu. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Einnig varðandi það sem segir í umsögn Lilju Ólafsdóttur, fyrrum
    samningamanns í þessu máli um laga- og stofnanamál fyrir Ísland við gerð
    EES-samningsins, þar sem hún dregur fram að niðurstaðan hafi orðið sú sem
    birtist í bókun 35 þar sem Evrópusambandið dregur úr kröfum um að
    EES-reglur hafi forgang gagnvart landslögum, en að EFTA-ríkin setji
    lagaákvæði þess efnis að EES-reglur sem innleiddar hafa verið í landslög
    hafi forgang þegar árekstur verður við önnur landslög. Niðurstaða
    Hæstaréttar frá því fyrir tveimur vikum segir líka að íslenskum
    stjórnvöldum hefði átt að vera þetta ljóst alveg frá árinu 2011. Mér
    finnst hv. þingmaður tala í algjörum þversögnum. Alþingi er síðan, vel að
    merkja ef hv. þingmaður veit ekki af því, búið að uppfæra
    fæðingarorlofslögin svo framkvæmdin er í takti við EES-samninginn. Það er
    ekki vafaatriði, enda átti Hæstiréttur ekki erfitt með að reikna Önnu
    Bryndísi Einarsdóttur einhverjar bætur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>