<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:09:25" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:11:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:09:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Aðeins varðandi fæðingarorlofsdóminn. Já, það
    er alveg rétt að lögum um Fæðingarorlofssjóð var breytt á síðasta ári. Ég
    þekki það ágætlega, enda var málið til umfjöllunar í hv. velferðarnefnd.
    Hæstv. ráðherra segir að lögin séu í dag í samræmi við EES-rétt. Já, en
    EES-rétturinn veitir hins vegar svigrúm. Hann veitir miklu meira svigrúm
    heldur en svo að hægt sé að slá því föstu að það sé bara einhver ein
    aðferð til að mæta þessum kröfum um samræmingu almannatryggingakerfa. Í
    dag eru lögin þannig að það er gert ráð fyrir að miða við tekjur á Íslandi
    eins og viðkomandi hefði verið að vinna á Íslandi í 12 mánuði. Ef læknir
    flytur til Íslands tveimur mánuðum fyrir fæðingu barns og vinnur hér bara
    í tvo mánuði, hvernig á að reikna út launin? Þá eru það núna íslensk lög
    sem kveða á um það eftir breytinguna að það sé reiknað út yfir 12 mánaða
    tímabil, gert ráð fyrir að það sé íslenskur launataxti sem gildi. En það
    kom einmitt skýrt fram í dómi Evrópudómstólsins í þessu máli að
    reglugerðin segir ekkert um þetta. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að
    ríki Evrópusambandsins og inni á EES-svæðinu ákveði að miða launin við
    ríkið þar sem viðkomandi var að vinna, þannig að viðkomandi sem er að
    sækja um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði leggi fram launaseðla þar sem
    hann var að vinna og að við það sé miðað. Þetta horfir auðvitað öðruvísi
    við frá sjónarhóli okkar Íslendinga eða flestra annarra landa þar sem
    launin eru miklu lægri. Við getum auðvitað ekki setið undir því að menn
    komi hingað gagngert t.d. til að eiga börn til að fá reiknaðar hærri
    tekjur í fæðingarorlofi.<ns:línubil/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef ekki tíma til að svara varðandi forsendur EES-samningsins
    en það liggur fyrir <ns:bjalla/> að það var samkomulag um það, þ.e.
    Alþingi samþykkti 3. gr. EES-samningsins. <ns:bjalla/> Þar með var málið
    útrætt. 3. greinin er <ns:bjalla/> innleiðing með sínum hætti á bókun 35
    en því var hafnað <ns:bjalla/> að setja forgang á EES-réttinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar"> Forseti ítrekar
    tímamörkin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>