<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T15:12:03" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:14:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:12:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er alveg skýrt sem kemur fram frá þáverandi
    nefndarmönnum: Ef þeir hefðu vitað að það væri ekki verið að innleiða
    þetta réttilega þá hefðu þeir bara farið aðrar leiðir til þess að
    framfylgja því sem bókunin inniheldur síðan í rauninni. Ég vil líka draga
    fram að þetta frumvarp sem hér er byggt á er m.a. byggt á því sem kom frá
    síðustu ríkisstjórn, ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknar og
    Sjálfstæðisflokksins, sem byggt var m.a. á vinnu starfshóps sem hv.
    þingmaður sat sjálfur í. Mér þætti fróðlegt að vita hvað hefur breyst
    síðan það álit var sett inn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins líka út af söluturninum. Mér finnst eiginlega alveg með
    ólíkindum að hugsa hversu kaldrifjuð nálgunin er af hálfu hv. þingmanns.
    Staðan er sú að íslensk lög, í trássi við EES-samninginn, settu það á
    lítinn íslenskan söluturn að bæta það tjón sem brot stórs framleiðanda<!--15:12:52 hlusta (heyrist hún segja: brot ... stórframleiðandi úti í heimi olli.) Mín tillaga hér fyrir ofan.-->úti
    í heimi olli. Gott og vel. Það getur vel verið að við getum talað um
    einhverja gullhúðun. Hefði innleiðingin verið rétt þá hefði skuldinni
    verið skilað alfarið til rétts aðila, sem er að mínu mati framleiðandi
    þessa efnis sem olli þessu tjóni, þessum erfiða skaða á stúlkunni. Þannig
    að mér finnst, eðli máls samkvæmt, að fjársterkur framleiðandi, sem er mun
    burðugri til að standa undir þeirri skaðabótaábyrgð, hefði átt að gera það
    frekar en að lítil rekstrareining sem ber ekki ábyrgð á framleiðslunni
    stæði undir henni. Þarna erum við bara með mismunandi nálgun. Við getum
    alveg karpað fram og til baka og ég er að reyna að bera virðingu fyrir því
    sem hv. þingmaður er að segja í þessari nálgun. Það sem mér finnst standa
    eftir er: Vill Miðflokkurinn — af því að mér finnst hann tala tungum
    tveim: Hv. þingmaður segir eitt en ég heyri líka aðra þingmenn
    Miðflokksins ekki vera að tala skýrt um hvort við ætlum að standa undir
    okkar skuldbindingum sem fylgja því að vera með EES-samninginn. Mér finnst
    kominn tími til að Miðflokkurinn tali svolítið skýrt í þessu máli. Er hann
    tilbúinn til að standa með EES-samningnum, standa með litlum fyrirtækjum?
    Af því að mér finnst það skorta á og ég er hér í fyrirspurn til
    þingmanns.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>