<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:16:55" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:19:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:16:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér er farið um víðan völl í ræðu hv. þm. Sigríðar Á.
    Andersen og stórar fullyrðingar látnar falla sem við verðum aðeins að tæpa
    á. Ég nýt góðs af því að hafa líka setið í almennri lögfræði hér snemma á
    þessari öld og fullyrðingar um að skráðar forgangsreglur sem þessi myndu
    kollvarpa íslensku fullveldi seilast ansi langt. Ég ætla að nýta tækifærið
    og spyrja hv. þingmann hvort það séu ekki fjölmörg fordæmi fyrir bæði
    óskráðum og skráðum forgangsreglum í íslenskum rétti, hvort sem um er að
    ræða stjórnsýslulög, upplýsingalög, hjúskaparlög, barnalög og
    barnaverndarlög. Eru ekki fjölmörg dæmi um skráðar forgangsreglur og
    hvernig er þessi forgangsregla skráð sem slík annars eðlis? Reyndar ætla
    ég að taka það að mér að svara því í örstuttu máli fyrir hönd hv.
    þingmanns vegna þess að hún veit það jafn vel og sú sem hér stendur að hér
    er um að ræða svokallaða sui generis, þ.e. sérstaks eðlis, forgangsreglu
    sem hefur verið við lýði í íslenskum rétti í fjölmörg ár og er við lýði
    núna, t.d. varðandi Mannréttindasáttmála Evrópu sem nýtur sérstakrar stöðu
    gagnvart almennum lögum í þessu landi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við heyrum það líka í máli hv. þingmanns að hér sé um að ræða
    einhvers konar afturhvarf til fortíðar, þ.e. að við höfum alltaf ætlað að
    gera þetta svona. Hvernig getur hv. þingmaður þá skýrt það að fram til
    ársins 2003, í máli Harðar Einarssonar, var forgangur EES-reglna
    viðurkenndur, þ.e. EES-reglur nutu sérstakrar stöðu? En það var ekki fyrr
    en í Biðskýlismálinu 2010, margumrædda, að eitthvað breyttist, sem síðan
    var meitlað í stein með Flugastraumsdómsmálinu 2013 og síðan geirneglt með
    dómi fullskipaðs Hæstaréttar 2024 í fæðingarorlofsmálinu, að EES-reglur
    nytu ekki lengur þess forgangs sem alltaf var gert ráð fyrir að þær nytu
    samkvæmt EES-samningnum og bókun 35 eins og var samþykkt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>