<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:19:26" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:21:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:19:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er alveg rétt, það eru alls konar
    forgangsreglur sem eru lögfestar í íslenskan rétt og þær byggja á því að
    sérreglur gangi framar almennum reglum. Það liggur fyrir og það er enginn
    ágreiningur um það. Ég geri heldur engan ágreining við hæstaréttardómana
    eins og þeir hafa verið, þeir eru algerlega eðlilegir og í fullkomnu
    samræmi við íslensk lög og EES-réttinn og ætti ekki að koma neinum manni á
    óvart að skýrum lagatexta verði ekki vikið fyrir einhverri reglugerð frá
    Evrópusambandinu þótt hún sé innleidd t.d. eða innleiddum rétti að öðru
    leyti. Þannig að þetta er allt eðlilegt. Ég hef ekki skýringar á því af
    hverju Hæstiréttur tók fljótlega eftir EES-samninginn að dæma öðruvísi og
    veita einhvern forgang gegn skýrum ákvæðum íslenskra laga. Gæti það verið
    vegna þess að Hæstiréttur er skipaður fólki og dómstólar gera líka mistök
    stundum? Gæti það verið að menn þyrftu að horfa í það? Ef menn hafa fylgst
    með dómaframkvæmd Evrópudómstólsins — það er reyndar til að æra óstöðugan
    að fylgjast með dómaframkvæmd Evrópudómstólsins, hann kveður upp mörg
    hundruð dóma á ári hverju um bara ágreining um túlkun á reglum og lögum
    Evrópusambandsins. Það er daglega uppi ágreiningur um þetta. Vandinn við
    EES-réttinn eins og hann hefur þróast er ekki EES-samstarfið heldur
    einmitt Evrópusambandið og reglusetningin þar sem hún er að verða
    flóknari, opnari, matskenndari og hefur farið meira úr tilskipunarforminu
    yfir í reglugerðarform en er samt mjög opin og mjög háð túlkunum. Og það
    er það sem ég hræðist, innleiddar reglur sem eru háðar túlkunum
    erlendis.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>