<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:21:56" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:24:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:21:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en ég verð að
    viðurkenna að ég er engu nær. Hv. þingmaður veit jafn vel og sú sem hér
    stendur að það var ekki eitthvert fum hjá Hæstarétti fram til ársins 2013
    að dæma í samræmi við meginreglur EES-réttarins eins og hann er og birtist
    í norskri réttarframkvæmd og dómaframkvæmd, dómaframkvæmd sem líður ekki
    fyrir óskýrleika sem er til staðar núna í íslenskum rétti sem fullskipaður
    Hæstiréttur hefur staðfest að sé til staðar. Það ríkir pólitískur vilji af
    hálfu, vonandi meiri hluta þessa þings, að færa þetta til betri vegar
    vegna þess að það er ábyrgð Íslands að gera það. Það er ekki ábyrgð
    erlendra dómstóla og erlendra lögspekinga að færa þetta til betri vegar í
    þágu fólks og fyrirtækja í landinu, fyrirtækja sem mér finnst hv.
    þingmaður tala af fullmikilli óvirðingu um, hvort sem það eru sjoppur eða
    bankar hér í landi. Hv. þingmaður veit vel að það er fólk sem bíður skaða
    af óbreyttu ástandi. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil biðja hv. þingmann að útskýra fyrir mér, fyrst hún nefndi
    það sérstaklega í ræðu sinni, hvað það er sérstaklega sem henni þykir
    skemmtilegast í þessari umræðu, skemmtilegast við umræðuna um bókun 35 sem
    hér hefur skapast um þetta mál núna í fjórgang. Er það réttaróvissan? Er
    það sú staða að það sé skemmtilegt að beina því til fólks sem verður fyrir
    tjóni af óbreyttu ástandi að höfða mál við íslenska ríkið? Og ekki bara
    einu sinni heldur tvisvar, til að fá dæmdar bætur vegna mistaka við
    innleiðingu eða óskýrs réttarástands, ástands sem við svo sannarlega getum
    fært til betri vegar núna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrst ég hef tíma langar mig líka til að spyrja, og ég veit að ég
    fer fram á að mikið: Hefur hv. þingmaður talið norska konungsríkið
    fullvalda ríki, líkt og hún minntist reyndar á í ræðu sinni? Er Noregur
    frjálst og fullvalda ríki? Ef svo er, hvernig má það vera í ljósi þess að
    stjórnskipunarlög þeirra leyfa þetta valdaframsal? <ns:bjalla/> Hvernig má
    þá vera að við missum fullveldi okkar og gefum af því afslátt ef við
    innleiðum einfalda og skýra forgangsreglu <ns:bjalla/> í þágu einsleitni
    hér á Íslandi þannig að við skerum okkur ekki úr á evrópska vísu?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti minnir á
    tímamörkin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>