<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:24:33" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:26:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:24:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér
    tækifæri til þess að skerpa aðeins á, ef ekki leiðrétta, það sem ég sagði
    í fyrra andsvari við hana varðandi Hæstarétt og þessa fyrri dóma. Ég er
    ekki í stöðu til þess núna til að reifa þessa dóma. Auðvitað voru þeir
    ekki einhver mistök. Ef við tökum mál Harðar Einarssonar,
    virðisaukaskattsmálið á sínum tíma, þá var, að mig minnir, í því máli,
    a.m.k. Hæstiréttur að beita nákvæmlega 3. gr., þ.e. túlkunarreglunni. Þá í
    einhverjum af þessum málum var svigrúm til þess að túlka íslensk lög af
    því að löggjöf og lagaákvæði eru stundum óljós og því miður þarf þá að
    fela dómstólum það verkefni að túlka lögin. Ef Hæstiréttur stendur frammi
    fyrir slíku verkefni og hefur tæki til þess að túlka það frá sjónarhóli
    EES-réttarins þá gerir hann það og það gerði hann vissulega í einhverjum
    málum fyrir, notaði túlkunarreglur. Hins vegar er Hæstiréttur mér
    hjartanlega sammála. Það er ekki það að beita túlkunarreglunni á
    lagaákvæði sem er kýrskýrt. Það verður ekki hægt að gera það og ég fagna
    því að Hæstiréttur hafi ekki gengið svo langt að ýta því til hliðar, enda
    myndi hann ekki gera það og hann segir ekkert um að bókun 35 sé ekki
    réttilega innleidd. Hæstiréttur hefur aldrei sagt það, Hæstiréttur hefur
    ekki skoðun á því. Hæstiréttur hefur ekki verið spurður um það hvort hún
    sé réttilega innleidd. Hann hefur bara verið spurður um hvort það gildi en
    ekki hvort það sé réttilega gilt. Annað væri það nú ef Hæstiréttur ætlaði
    að taka sér það vald og segja: Nei, okkur finnst þetta ekki réttilega
    innleitt, þið verðið að gera þetta eitthvað öðruvísi. Hæstiréttur bara
    segir: Þetta hefur ekki verið innleitt, það er ekki hægt að byggja á því,
    það er bara hægt að byggja á túlkunarreglunni og þess vegna fellur málið
    svona. Hæstiréttur sendir engin skilaboð hingað inn á löggjafarþingið. Ef
    þeir tækju upp á því þá þyrftu þeir ekki að kemba hærurnar í sínum sætum,
    held ég, ef þeir ætluðu að skipa löggjafanum fyrir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>