<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:27:01" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:42:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:27:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Við erum hérna stödd enn eina ferðina og ætlum að
    reyna að klára þetta mál í eitt skipti fyrir öll vegna þess að okkur
    langar til þess að gera það, ekki vegna þess að einhver er að segja okkur
    að gera það. Það er gott fyrir Ísland, það er gott fyrir fyrirtækin í
    þessu landi, það er gott fyrir einstaklingana og það er gott fyrir
    Alþingi. Það er líka gott fyrir ríkissjóð vegna þess að málshöfðanir
    kosta, ekki bara einstaklinga sem eru leiddir hér í þá sneypuferð að sækja
    rétt sinn fyrir Hæstarétti sem fyrirséð er að mun ekki dæma þeim í vil
    heldur aðeins skaðabætur í seinna dómsmáli vegna þess að við höfum ekki
    gert þær úrbætur sem við þurfum að gera í EES-réttarumhverfi okkar.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Umræðan er bara rétt að fara af stað. Ég heyrði hér að minnsta
    kosti eina ræðu þar sem maður heyrði mikið af því sama og áður hefur verið
    sagt í þessum sal í tengslum við þetta ágæta mál. Sömu viðvörunarorðin um
    fullveldið, að því stafi hætta af þessari einföldu forgangsreglu og sömu
    fullyrðingarnar um að hér sé verið að færa eitthvert nýtt vald til Evrópu
    frá Alþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil tæpa á því helsta sem greinir EES-réttinn frá
    Evrópusambandsréttinum. Það er ekki það sama að vera í EES og ESB. Við
    ræddum það í þaula í sumar og höfum gert það faktískt í áraraðir. Það er
    alveg rétt eins og komið hefur fram hér í þessum sal í dag að EFTA-ríkin,
    sem þá voru fleiri en þau eru í dag, þar voru fyrir á fleti Svíþjóð og
    Finnland t.d. sem nú hafa gerst aðilar að Evrópusambandinu — Noregur og
    Ísland höfnuðu því á sínum tíma að taka upp þá reglu ESB-réttarins að
    Evrópulöggjöfin hefði hérna bein réttaráhrif, þ.e. ef eitthvað er samþykkt
    á Evrópuþinginu þá sé hægt að byggja á þeim rétti beint hafi það ekki
    verið leitt í landslög. Við vitum að þegar EES-regla verður að veruleika
    hér og verður að íslenskum lögum þá þarf Alþingi Íslendinga að samþykkja
    hana. Það birtist ekkert eitthvað bara með tölvupósti hér í ráðuneyti og
    er fært inn í lagasafnið. Við þurfum að taka meðvitaða ákvörðun um það að
    samþykkja þessa reglu. Það er algjörlega hafið yfir allan vafa. Það eru
    ókostir við það en það eru líka þeir kostir að við lesum okkur í gegnum
    það. Við verðum að passa okkur á því að gullhúða ekki þessar reglur. Það
    hefur stundum verið áskorun en við skulum ekki tala kannski um það hér í
    dag, geymum það til betri tíma. En þetta eru íslensk lög. Við erum að færa
    forgangsregluna í lög um það að íslensk lög sem eiga rætur að rekja til
    Evrópuskuldbindinga hafi forgang. Þau hafi forgang gagnvart öðrum
    íslenskum lögum og eftir atvikum stjórnvaldsfyrirmæli gagnvart
    stjórnvaldsfyrirmælum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt verður ekki látið bera hallann af þessari forgangsreglu, ef
    ég má taka svo til orða, og það er íslenska stjórnarskráin. Það verður
    engin Evrópulöggjöf látin vera í forgangi gagnvart íslensku
    stjórnarskránni. Það þarf að koma hér skýrt fram og er of lítið nefnt.
    Bókun 35 er sem sagt þessi málamiðlun eða engin málamiðlun, þetta er bara
    EES-sérregla sem greinir EES-samstarfið frá Evrópusambandssamstarfinu,
    þ.e. að þegar EES-regla hefur verið réttilega tekin inn í landsrétt og er
    skýr og óskilyrt þá á að tryggja henni forgang gagnvart öðru almennu
    lagaákvæði ef reglurnar rekast raunverulega á. Alþingi heldur áfram að
    fara með löggjafarvald sitt. Það verður ekki tekið af því. Alþingi getur
    meira að segja ákveðið síðar með galopin augun og meðvituðum hætti að fara
    á svig við EES-réttinn, ákveði Alþingi að gera svo. Þá verða þau lög
    stjórnskipulega gild og Íslendingar geta byggt rétt á þeim lögum eða liðið
    fyrir þá útfærslu, hvernig sem því nú háttar í framkvæmd. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér gætum við tekið upp á því að banna dönskum eða þýskum
    ríkisborgurum að stofna hér fyrirtæki á einhverju ákveðnu sviði eða bannað
    allan innflutning á einhverri tiltekinni vöru frá Evrópu. Það væri brot á
    fjórfrelsinu en við gætum sett slík lög. Það fullveldi er ekki tekið af
    okkur. Myndum við lenda í einhverju samtali við Eftirlitsstofnun EFTA,
    ESA? Já, ábyggilega. En þetta væru lög á Íslandi. Við höfum meira að segja
    einu sinni í beinu framhaldi af heimsfaraldrinum tekið ákvörðun um það að
    ganga skemur en Evrópureglurnar kváðu á um í tengslum við bætur fyrir
    ferðir sem féllu niður vegna faraldursins. Þá ákvað Ísland að fara þá leið
    að greiða ekki út fjárhæðir eða endurgreiða ekki ferðina líkt og
    Evrópureglurnar kváðu á um, heldur veita svokallaða ferðaávísun. Þannig að
    það er ýmislegt hægt í þessu. Fullveldið er hér og löggjafarvaldið er hér
    hjá Alþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mun hins vegar breytast með því að samþykkja útfærsluna
    eins og hún lítur út í dag er að við hættum að draga íslenskan almenning
    og fyrirtæki í þá, eins og ég segi, örmu för að höfða dómsmál gegn
    íslenska ríkinu þegar íslensk löggjöf og réttilega innleidd EES-regla
    stangast á. Það er mér ofar skilningi hvernig fólk getur með góðu móti
    varið óbreytt ástand vitandi vits þegar þetta er tilfellið, að fólk skuli
    verja það ástand sem ásættanlega lausn með réttaróvissu hverju sinni,
    forseti, óvissu sem við getum hér inni, íslenskt Alþingi, komið í veg
    fyrir. Mér finnst erfitt að skilja það. Það getur fátt annað ráðið því en
    að vilja hreinlega áfram tortryggni og áfram óreiðu í tengslum við umræðu
    um skuldbindingar okkar á Evrópska efnahagssvæðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Þetta er samningur sem Ísland gerði en hjá þeim sem tala
    gegn þessari leið þá virðist aftur og aftur vera gerð krafa um það að
    EES-samningurinn sé bara eitthvað allt annað en hann er. EES-samningurinn
    er ekki hlaðborð þar sem fólk getur valið og hafnað eftir behag. Þetta er
    það sem við gengumst undir, það sem við samþykktum, það sem við fengum að
    vera með í, einu öflugasta markaðssvæði sem okkur gefst kostur á að njóta
    góðs af í samfélagi þjóða sem deila saman gildum og sem vilja deila saman
    leikreglum. Ísland yrði ekki sama landið ef við kysum að snúa okkur
    eitthvert annað eins og mér finnst stundum hafa verið haft í flimtingum
    hér í sumar þó að ég ætli ekki að ásaka fólk hér inni um það. Mér finnst
    við þurfa að horfast í augu við það að þessi markaðsaðgangur og þessi
    forréttindi sem við njótum innan EES-svæðisins eru verðmæt og við eigum að
    standa við skyldur okkar. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég velti því fyrir mér við hvað fólk er eiginlega hrætt. Hvaða
    réttindi hefðum við séð eftir ef núverandi ástand hefði ekki skapast? Það
    er eins og fólk vilji einhvern veginn verja óbreytt ástand, eins og það sé
    betra en það var hér fyrir 2010. Finnst fólki ákjósanlegt að það sé
    óskýrleiki og annað umhverfi sem gildi um skaðabótakröfur, eins og í
    Biðskýlismálinu þar sem bara lítið fyrirtæki suður með sjó lenti milli
    steins og sleggju gagnvart barni sem varð fyrir varanlegu líkamstjóni og
    innflytjanda sem flutti inn hættulega vöru sem átti ekkert erindi inn á
    evrópskan markað. Finnst fólki þetta verjandi? Finnst þingheimi þetta dæmi
    um eitthvað sem við þurfum að standa vörð um? Nei, vissulega ekki. Það er
    vísað í fullveldi. Finnst fólki gott að það væri óskýrleiki varðandi það
    hvaða réttarumhverfi gilti um frjálst fjármagnsflæði í tengslum við
    lánasamninga í flugumferðarstjóramálinu eða neytendalánin eða
    fæðingarorlofsmálið? Vill fólk hafa þetta svona?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við viljum að það sé öruggt að flytja aftur heim til Íslands og að
    fólk njóti þeirra réttinda og félagslegu réttinda sem það hefur búið við
    annars staðar í álfunni, að Ísland skeri sig ekki úr. Þarna er gagnkvæmni
    lykilatriði og einsleitni er eitthvað sem við eigum að sækjast eftir vegna
    þess að það þýðir einfaldlega það að við getum gengið að sömu réttindum ef
    við færum okkur um set innan álfunnar. Það er gott. Það gerir okkur að
    áreiðanlegum bandamanni og viðsemjanda. Erlendir fjárfestar geta gengið að
    því vísu að íslensk fyrirtæki séu ekki í öðru umhverfi en þau sem eru á
    meginlandinu. Og ég vil líka segja við þá sem dásömuðu kosti
    EES-samningsins í sumar að þeir kostir hanga saman við gerð samningsins.
    Við getum ekki selt almenningi einhverja ímyndaða og óraunhæfa útgáfu af
    EES þegar okkur hentar og síðan lýst grundvallarreglunum sem einhverju
    valdaráni frá útlöndum þegar kemur að því að efna okkar eigin
    skuldbindingar — vegna þess að mér finnst fólk dansa á þeirri línu, mér
    finnst það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil biðja þingheim um að fara varlega með hugtakið fullveldi,
    að tala af ábyrgð um það hvað felst í framsali á því, hver munurinn er á
    því að framselja það og afsala sér því. Það er munur. Það er líka munur á
    því að framselja það og deila því með öðrum. Við hefðum deilt því með
    Evrópusambandinu hefðum við ákveðið að gerast aðildarríki að því. Það er
    ekki á dagskrá. Þjóðin ákvað það í sumar og við virðum það. Það er ekki á
    dagskrá þessarar ríkisstjórnar að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Við
    erum í EES og þá höfum við samþykkt að hér gilda forgangsreglur
    EES-réttarins og forgangsregla EES-réttarins er sú að við samþykkjum
    íslensk lög sem eiga uppruna að rekja til Evrópusamstarfsins þar sem
    fjórfrelsið er kjarninn í þessu. Þær reglur eiga að hafa forgang þegar það
    kemur upp árekstur. Svo getum við farið út í það hvernig við ætlum að koma
    að mótunarstigi þessara reglna og hvort við viljum gera okkur meira
    gildandi þar. Það er önnur umræða en ég hef ekki mikinn tíma eftir þannig
    að það bíður betri tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Ég spyr í einlægni: Til hvers? Hæstiréttur Íslands
    fullskipaður hefur þegar sagt okkur að 3. gr. EES-laganna sé ekki þessi
    almenna forgangsregla sem við ætluðum að viðhafa í íslenskum rétti þegar
    við samþykktum að gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu árið 1993 og
    gengum inn í það 1994. Það sýnir dómaframkvæmd. Þetta var í lagi og svo
    breyttist dómaframkvæmd. Þá verður löggjafinn að taka meðvitaða ákvörðun
    um það hvort hann vilji stíga inn í, færa þetta til vegar sem hann telur
    vera réttan og í samræmi við EES-samninginn eða viðhalda réttaróvissunni.
    Ég er ekki í liði með þeim sem vilja verja síðarnefndu leiðina. Það er
    ekki gott. Það er ekki gott fyrir Ísland. Það er ekki gott fyrir traust
    annarra í okkar garð. Það er ekki gott fyrir fyrirtæki og einstaklinga í
    landinu og þeir sem vilja verja þá leið verða að segja mér til hvers er að
    vinna. Ef fólk nefnir fullveldi þá verður fólk að útskýra fyrir mér
    hvernig Noregur er ekki fullvalda ríki. Fólk verður að geta gert
    greinarmun á því hvernig við viðhöldum fullveldinu okkar í tengslum og í
    gegnum EES-samninginn og hvernig við afsölum okkur fullveldi í einhverjum
    óskýrum tilgangi. Mér finnst hoppað yfir ansi marga fleti í þessari umræðu
    þegar fólk hefur það í flimtingum að hér séum við að framselja eða afsala
    okkur valdi til erlendra aðila.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og fyrst við tölum um erlendra aðila þá erum við hreinlega komin á
    þann stað að erlendur dómstóll telur að það verði ekki við óbreytt ástand
    unað og ég er sammála þeim sem benda á það. Hér hefur hæstv.
    utanríkisráðherra m.a. verið spurður: Til hvers að fara ekki út og láta á
    þetta reyna? Ég segi fyrir mína parta: Það eru bara til dómsmál sem við
    höfum engan áhuga á að vinna. Ég get alveg staðið fyrir því. Til hvers er
    barist, spyr ég? Hvað yrði unnið með því? Fólk verður að geta svarað
    því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér er greinilega til fólk sem vill viðhalda óskýru réttarumhverfi
    í tengslum við EES, sem vill verja það að það gildi ekki sömu reglur á
    Íslandi og annars staðar á EES-svæðinu og að það sé gott fyrir Ísland.
    Fólk sem hefur þetta í frammi og segir að nú sé kominn tími til þess að
    beita sér öðruvísi í EES og hafna og velja meira úr verður að útskýra
    fyrir almenningi hvort það vilji raunverulega vera hluti af EES-svæðinu
    vegna þess að ábyrgð, skyldur og réttindi, þetta helst allt í
    hendur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>