<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:42:39" skst="RagnhJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:43:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:42:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að beina spurningum til hv. þm.
    Dagbjartar Hákonardóttur um þá stöðu sem er nú komin upp. ESA hefur vísað
    samningsbrotamálinu gegn Íslandi vegna innleiðingar bókunar 35 til
    EFTA-dómstólsins. Það er nú dómstólsins að skera úr um hvort Ísland hafi
    fullnægt skuldbindingum sínum. Og ég spyr því: Hvaða áþreifanlegu
    hagsmunir Íslands kalla á að Alþingi samþykki þessa lagabreytingu áður en
    niðurstaða EFTA-dómstólsins liggur fyrir? Hvað vinnum við á því að
    afgreiða málið núna? Og ekki síður, hverju hættum við með því að bíða
    eftir niðurstöðu dómstólsins?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í greinargerð frumvarpsins er lögð áhersla á að með því að leysa
    málið hér heima sé tryggt frumkvæði og forræði Íslands við lausn þess. En
    hvert er í raun það aukna forræði sem Ísland hefur áður en dómur fellur
    þegar sú lausn sem við veljum þarf hvort sem er að fullnægja
    skuldbindingum okkar gagnvart EES-samningnum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>