<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:43:53" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:45:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:43:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hún er í
    sjálfu sér eðlileg. Ég vil byrja á að segja: Hagsmunirnir af því að leysa
    þetta núna eru náttúrlega ótvíræðir. Ég held að það dyljist engum að ef
    við kæmum því til leiðar að samþykkja þessa skriflegu forgangsreglu í
    tengslum við það hvernig við ætlum að reka EES-samninginn á Íslandi séu
    allar líkur á því að málið yrði fellt niður. Það væri gott fyrir Ísland.
    Það væri gott fyrir fólk og fyrirtæki í þessu landi og það væri gott fyrir
    okkur. Að leysa þetta núna, til hvers er unnið? Ég velti því bara upp
    hvort það sé eftirspurn eftir því að kíkja í þann pakka hér í þessum sal
    gagnvart EFTA-dómstólnum, til þess að sjá hvort það sé ekki bara hreinlega
    hægt að vinna málið. Ég lít svo á að ekki séu bara stjarnfræðilegar líkur
    á að vinna þetta mál heldur stend ég við þá skoðun mína að sumt sé bara
    ekki þess virði að fara út í. Ég veit bara ekki <ns:bjalla/> hvað yrði
    unnið með því að tala fyrir því að hér ríki einhvers konar önnur
    einsleitni eða bara hreinlega engin einsleitni á Evrópska efnahagssvæðinu,
    þ.e. á Íslandi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>