<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:46:08" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:47:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:46:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Ég
    náði ekki alveg upphafsspurningunni en varðandi afstöðu ESA og hvort hún
    hafi verið gefin út varðandi þessi málaferli þá hef ég hana ekki, bara
    ekki að neinu leyti og kann ekki við að svara fyrir hönd
    Eftirlitsstofnunar EFTA hvað það varðar. En það liggur bara í hlutarins
    eðli að ef réttarástandið lagast og viðbrögð koma frá íslenskum
    stjórnvöldum sem leiða þetta mál í jörð, ef svo má segja, þá held ég að
    það væri ekki til mikils fyrir eftirlitsstofnunina að halda þessum
    málaferlum til streitu. Varðandi það hvort búið væri að leggja mat á
    hagsmuni af því að fara þessa leiðina eða ekki þá held ég að engum blöðum
    sé um það að fletta að við höfum miklu meiri hagsmuni af að leiðrétta
    þetta óviðunandi réttarástand í þágu almennings í landinu og í þágu þess
    að Ísland sé áreiðanlegur viðsemjandi og þátttakandi á
    EES-svæðinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>