<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:47:19" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:48:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:47:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég hef áhuga
    á að taka upp svona framhald af orðaskiptum mínum við hæstv.
    utanríkisráðherra, þ.e. hvort hv. þingmaður sé sammála mér um að verkefnið
    hér eftir sem hingað til sé og verði alltaf að innleiða réttilega þær
    EES-reglur sem við þurfum að innleiða og okkur ber að gera. Þá er ég að
    leitast eftir því að fá smá meiri lit á það, vegna þess að mér finnst
    þetta mál fá of mikla vigt í opinberri umræðu, bæði hjá þeim sem eru
    fylgjandi og á móti málinu. Það er auðvitað ábyrgðarhluti að tala úr
    sitthvorri áttinni, en þá er ég að vísa til þess að þetta sé einhvers
    konar allsherjarlausn á þessu flókna álitaefni og ég tel svo ekki vera.
    Verkefnið er óbreytt og ég tala nú ekki um þegar maður lítur á texta
    frumvarpsins sjálfs. Þá þætti mér áhugavert — ég geri mér grein fyrir því
    að þetta er kannski stórt og flókið atriði — hvort hv. þingmaður telji
    ekki að orðalagið einmitt um skýra og óskilyrta EES-reglu afmarki þetta
    bara mjög vel, að það þurfi að vera afdráttarlaus regla sem veitir þá
    <ns:bjalla/> hvort sem er einstaklingum eða lögaðilum einhver
    réttindi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>