<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:48:50" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:49:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:48:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir góða
    spurningu. Ég tek undir með hv. þingmanni um að þetta mál fái allt of
    mikla vigt í umræðunni um Evrópska efnahagssvæðið og skyldur Íslands á
    þeim vettvangi. Varðandi þessa óskilyrtu og skýru reglu sem um ræðir — og
    ég vona að ég sé ekki að muna rangt úr þessari umræðu — þá er hérna að
    skapast einhvers konar núningur um það hvort reglugerðin í
    fæðingarorlofsmálinu hafi verið rétt innleidd eða ekki. Það er, held ég,
    hafið yfir vafa að hún hafi ekki verið rétt innleidd. Það er aldrei hægt
    að koma í veg fyrir það. En jú, við þurfum að setja allan fókus á það og
    við erum nú að gera það hér í hv. utanríkismálanefnd, og fer ég fyrir
    þeirri vinnu ásamt hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, að við þurfum að vanda
    betur til verka þegar við tökumst á við það verkefni að innleiða
    Evrópureglur, þ.e. EES-gerðir, með þeim hætti að hafið sé yfir allan vafa
    hvað kemur frá Evrópu og hvað er bein íslensk útfærsla. Þetta þarf líka að
    eiga við um stjórnvaldsfyrirmæli vegna þess að það er urmull af þeim í
    íslenskum rétti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>