<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:50:10" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:51:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:50:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Næst hef ég áhuga á að
    spyrja hv. þingmann örlítið út í þessa málshöfðun ESA á hendur íslenska
    ríkinu sem auðvitað, og ég segi því miður, litar að einhverju leyti
    umræður hér í þinginu og þá sérstaklega í ljósi þessara ummæla
    stjórnarmanns eftirlitsstofnunarinnar, Árna Páls Árnasonar, sem segist
    einhvern veginn hafa í raun og veru varað við því á fundi með fulltrúum
    allra flokka að ESA færi í þetta mál yrði frumvarpið ekki afgreitt á
    vorþingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. utanríkisráðherra sagði í andsvörum við mig að ástæðan væri
    einhvern veginn fjölþætt og vísaði í því sambandi m.a. til
    þinglokasamninga sem voru gerðir eðli málsins samkvæmt undir lok þingsins
    síðastliðið vor eða sumar. Staðreyndin er hins vegar sú að
    utanríkismálanefnd afgreiddi málið úr nefnd með nefndaráliti 2. desember
    síðastliðinn. Það var nægur tími til stefnu. Ef hv. þingmaður getur
    <ns:bjalla/> gefið okkur einhvern lit á það yrði það vel þegið, af hverju
    það var ekki gert þá.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>