<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:51:30" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:52:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:51:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Ég
    verð að vera á sömu nótum og hæstv. utanríkisráðherra þegar ég segi: Já,
    það er illu heilli stundum svo að frumvörp sem eru komin á lokametrana í
    þinginu, þar sem liggur að baki mikil og ítarleg vinna af hálfu nefndanna
    í formi nefndarálita og minnihlutaálita sömuleiðis, ná ekki fram að ganga
    í formi samþykktra laga. Þar ráða bara samningaviðræður á milli meiri og
    minni hluta hér á þinginu. Það er ekki við þá sem hér stendur að sakast að
    þetta frumvarp náði ekki fram að ganga. Það verða aðrir að fræða hv.
    þingmann betur um það. Ég hvet hv. þingmann til þess að komast til botns í
    þessu og að hvetja viðkomandi til dáða um að láta ekki afstöðu sína koma í
    veg fyrir að þetta mál verði að samþykktum íslenskum lögum, <ns:bjalla/>
    að þessi réttaróvissa heyri sögunni til og við getum einbeitt okkur að
    raunverulegu álitaefni sem er hagsmunagæsla Íslands í EES.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>