<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:53:05" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:54:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:53:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega ræðu
    þar sem hv. þingmaður fór víða. Mér hafa fundist orðaskipti hv. þingmanns
    við aðra þingmenn vera góð. Ég held að það sé augljóst að við þurfum að
    skoða það sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson var að vísa til vegna þess
    að hér tala stjórnarliðar um mikilvægi málsins og að þetta sé
    grundvallaratriði og hv. þingmaður hélt þannig ræðu. Það er þá
    óskiljanlegt af hverju þetta var ekki sett í forgang, ef málið er eins og
    lagt er upp með. En ég ætla ekki að spyrja að því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætlaði að spyrja hv. þingmann, sem mér fannst fara mjög vel
    yfir muninn á ESB og EES og beinu réttaráhrifin, af því að hv. þingmaður
    talaði líka um þjóðaratkvæðagreiðsluna: Hefði ekki farið betur á því ef
    forsvarsmenn já-hreyfingarinnar og ríkisstjórnin hefðu sagt frá þessu í
    atkvæðagreiðslunni, um forgangsáhrifin og ESB-réttinn? Ég spurði hæstv.
    ráðherra <ns:bjalla/> í hv. utanríkismálanefnd, ég held að hv. þingmaður
    hafi verið þar, og þá sagði hæstv. ráðherra að við gætum samið um
    ESB-réttinn. <ns:bjalla/> Heldurðu að það hefði ekki verið upplýstari
    umræða og betri ef já-aðilar hefðu bara sagt hlutina eins og þeir
    eru.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>