<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:54:36" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:55:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:54:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    spurninguna. Hún var bara ágæt. Ég vil hins vegar leiðrétta hann með það
    að það var bara ágætlega talað um muninn á beinum réttaráhrifum og
    forgangsreglunni í þessari umræðu í sumar þó að það hafi kannski ekki náð
    til eyrna allra. Undirrituð gerði það svo sannarlega í misskemmtilegum
    innslögum á samfélagsmiðlum og í tali sínu við kjósendur í símann. Það var
    kannski mögulega eitt af því sem var hvað erfiðast í þessari umræðu, að
    útskýra fyrir 19 ára Kvenskælingi muninn á beinum réttaráhrifum og
    forgangsreglu EES-réttarins. Það hefur svo kannski ráðið niðurstöðunni,
    enda var það svo að meiri hluti þjóðarinnar ákvað að halda sig við þá
    Evrópu sem það þekkti, EES-samninginn. En ég tel enga ástæðu til að fara
    út í það hvort umræðan hefði verið málefnalegri. Mér fannst hún að mörgu
    leyti, ekki öllu, bara ágætlega málefnaleg um þetta. Nú skulum við halda
    áfram <ns:bjalla/> og standa saman um EES-samninginn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>