<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:55:57" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:57:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:55:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hvet hv. þingmann bara til að fara á
    samfélagsmiðlana mína. Hún getur fundið þar klippu sem er einmitt úr
    beinni útsendingu í utanríkismálanefnd þar sem hæstv. utanríkisráðherra
    segir að þetta sé eitt af því sem við getum samið um. Ég varð ekki var við
    það að þessi skilaboð kæmu frá já-hreyfingunni, því miður. Þegar maður
    sagði frá þessu þá var manni sagt að maður væri að skrökva, hjá fólki sem
    trúði já-hreyfingunni. En látum það liggja á milli hluta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður vísaði hér í lokaorðum sínum í að við ættum að
    vernda EES-samninginn. Ég vil þá spyrja hv. þingmann, svipað og ég spurði
    hæstv. ráðherra, vegna þess að mér finnst þessi ríkisstjórn ekki vera að
    verja EES-samninginn og mér finnst það ekki í boði að forystumenn
    ríkisstjórnarinnar segi að það sé ásættanlegt að Evrópusambandið brjóti
    EES-samninginn. Ég vil spyrja hv. þingmann hvaða skoðun hv. þingmaður
    hefur á því. Telur hv. þingmaður að það sé ásættanlegt að Evrópusambandið
    brjóti EES-samninginn?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>