<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:58:49" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 15:59:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:58:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Sum dómsmál viljum við einfaldlega ekki vinna, sagði
    hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir hér í pontunni áðan. Við hin vitum þó alla
    vega hverja við viljum ekki hafa í okkar varnarsveit komi til þess að
    málið fari fyrir dómstóla. Það sem mig langar hins vegar að spyrja um, af
    því að vikið var að því í ræðu hv. þingmanns, er þessi samanburður við
    Noreg, að Noregur væri jú enn fullvalda ríki. Þá langar mig að spyrja hv.
    þingmann: Er það mat hv. þingmanns að stjórnarskrá Noregs, sem tók
    breytingum 1962, inniberi sambærilegar valdframsalsheimildir og
    stjórnarskrá Íslands?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>