<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T15:59:46" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:00:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T15:59:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir
    spurningu. Ég stend við orð mín. Mig langar ekki til þess að Ísland fari
    og reyni að sækja sigur fyrir EFTA-dómstólnum í þessu máli sem varðar
    bókun 35. Ástæðan er einföld. Mig langar ekki til þess, hef enga velþóknun
    á þeirri sviðsmynd að hér á Íslandi ríki ekki einsleitni gagnvart
    EES-réttinum, að hér sé ekki hægt að ganga að því vísu að EES-rétturinn
    gildi með sama hætti og í Noregi og Liechtenstein, að hér sé einhvern
    veginn annars konar fjórfrelsi en á Evrópska efnahagssvæðinu öllu. Það
    hefur ekkert að gera með fullveldisframsal eða bein réttaráhrif. Þetta er
    bara regla sem við tókum á okkur í formi þjóðréttarlegrar skuldbindingar
    1993 og tók gildi 1994. Þetta var réttarástand sem við bjuggum við
    2010–2013 og svo var það meitlað í stein 2024 að það væri ekki lengur virk
    forgangsregla í EES-réttinum. Mig langar til þess að laga þetta. Mig
    langar til þess að fara aftur í gamla góða Ísland sem ég þekkti, þegar
    forgangsreglan var skýr. Ég kem inn á norsku stjórnarskrána í mínu seinna
    andsvari því ég hef margt um hana að segja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>