<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:01:06" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:02:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:01:06">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér valdi hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir að verja
    öllum tíma sínum til svars í það örstutta innslag mitt áðan þegar ég
    vitnaði beint í hv. þingmann, en engum tíma hins vegar í að svara
    spurningunni minni. Ég kann hins vegar forseta miklar þakkir fyrir að fá
    hér allt að því bara fullgildan ræðutíma. Mig langar, af því að hv.
    þingmaður vék talsvert að því í máli sínu, að vitna til þess sem stundum
    er kallað málsmetandi aðilar, sem telja að þetta rúmist innan
    stjórnarskrár Íslands og ég gat ekki betur heyrt, byggt á menntun hv.
    þingmanns, en að hann teldi það standast. Þá langar mig að spyrja hv.
    þingmann út í til að mynda það sem Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi
    forseti Hæstaréttar, ritaði í grein í afmælisrit EFTA-dómstólsins árið
    2014. Ég sé það á tímanum að ég hef ekki tíma til að fara með hana
    orðrétt, því miður. En ég treysti á, í ljósi þess að þetta er áhugamál hv.
    þingmanns eins og þess sem hér stendur, að hún þekki það sem þar var ritað
    og spyr einfaldlega, frú forseti: Dregur hv. þingmaður niðurstöðu Markúsar
    Sigurbjörnssonar í efa? <ns:bjalla/> Telur hv. þingmaður sig þekkja
    stjórnarskrá Íslands og þá annmarka eða það valdframsal sem hún heimilar
    <ns:bjalla/> betur en áðurnefndur Markús Sigurbjörnsson?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>