<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:02:39" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:04:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:02:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil biðja hv. þingmann afsökunar á því að hafa
    ekki náð að koma mér að spurningu hans um norsku stjórnarskrána og vík mér
    að henni leiftursnöggt. Norska stjórnarskráin, 115. gr., tel ég, leyfir
    skilyrt, afmarkað valdframsal í þágu alþjóðastarfs, að því virtu að þrír
    fjórðu hlutar þingheims samþykki það, og meira að segja þurfa tveir þriðju
    þingsins að vera viðstaddir. Þetta er bara útfærsla í
    stjórnskipunarlögunum og þetta er að mörgu leyti mjög snyrtileg
    leið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég tek það á mig að geta ekki spurt hv. þingmann hvort það sé ekki
    bara hægt að skoða það í framtíðinni hvort þetta væri ekki bara betri
    leið, vegna þess að Noregur er svo sannarlega sjálfstætt og fullvalda
    ríki. Sjálfstætt og fullvalda ríki. Við erum að ganga skemur. Markús
    Sigurbjörnsson er nefnilega þeirrar skoðunar, og það gleymist mjög oft hjá
    Miðflokksmönnum þegar þeir nefna hann til sögunnar, að hann telur að það
    væri langbest hreinlega að breyta stjórnarskránni. <ns:frammíkall skst="ÞorgS"/> Ég velti fyrir mér hvort Miðflokkurinn sé tilbúinn til
    þess. Ef hann er tilbúinn til þess þá eru það fréttir og þá skulum við
    bara gera fundarhlé hér og fara að skoða það. <ns:frammíkall/>En nú erum
    við að taka skrefin skemur. Við erum að innleiða almenna <ns:bjalla/>
    forgangsreglu og ganga skemur. Það er óskiljanlegt hvernig það er ekki
    hægt að samþykkja það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>