<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:04:22" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:19:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:04:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Enn á ný ræðum við bókun 35, mál sem ég sagði
    einhvern tímann hérna í fyrri umræðum á þessu kjörtímabili að væri nú
    hálfgert lagastagl, hálfgerð þvæla, og við heyrum ef við hlustum grannt
    eftir að lögfræðingar sökkva sér hérna í hluti sem við sem ekki erum
    lögfræðimenntuð kannski forðumst en reynum að átta okkur frekar á stóru
    myndinni. Stóra myndin er auðvitað sú að mikilvægi EES-samningsins er
    engum vafa undirorpið og við í Framsókn höfum gefið það út margoft að við
    stöndum klárlega vörð um hann. Spurningin er bara hvernig á að standa vörð
    um hann og það er auðvitað verkefni allra, auðvitað hérna í þinginu en
    ekki síst á hendi framkvæmdarvaldsins á hverjum tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég fór hérna í ræðum á síðasta þingvetri yfir forsöguna. Við
    þekkjum það auðvitað að bókun 35 hefur verið til. Það er spurning um hvort
    hún hafi verið rétt innleidd og Hæstiréttur fór á einhverjum tímapunkti að
    dæma öðruvísi sem gerði það að verkum að upp komu þessi álitamál sem við
    höfum verið að glíma við og á kjörtímabilinu 2017–2021 tókum við til
    varna. En síðan gerist það sem hefur áður verið farið yfir að Hæstiréttur
    stígur þarna inn og sendir ákveðin skilaboð til þingsins. Í kjölfarið
    hefur verið unnið að þessu máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur setti þetta mál á dagskrá sem
    fyrsta mál sitt í byrjun febrúar 2025. Verkstjórnin mikla taldi mikilvægi
    þessa máls svo mikið að það yrði mikilvægast að taka þetta strax til
    afgreiðslu. Það gekk ekki eftir það vorið og aftur var málið tekið upp
    síðasta haust. Þá brá svo við að málið fór í gegnum umræður og alla vinnu
    utanríkismálanefndar og var tekið út í byrjun desember 2025. Þingið kemur
    síðan saman eftir jólafrí í janúar og ekkert bólar á bókun 35, þessu
    mikilvæga máli sem ríkisstjórnin hafði sett sem fyrsta mál á dagskrá.
    Febrúar líður og ekki bólar enn á bókun 35. Það hefði væntanlega verið til
    þess að gera auðveldara að afgreiða málið þá, í upphafi þessa árs, áður en
    allir þeir atburðir hafa gerst sem síðar hafa gerst. En verkstjórnin mikla
    ákvað þá að venda sínu kvæði í kross og setja bókun 35, fyrsta mál
    ríkisstjórnarinnar, mikilvægt mál, á ís og taka upp þjóðaratkvæðagreiðslu
    um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem yfirtók síðan svolítið alla
    umræðu í samfélaginu, eins og ábyggilega var tilgangurinn. Það fór í
    gegnum huga minn þegar ég horfði á blaðamannafundinn 6. eða 7. mars
    síðastliðinn að þetta væri einhver stærsta smjörklípa aldarinnar þar sem
    ríkisstjórnin væri að setja þetta mál á dagskrá til að forðast umræðu um
    verðbólgu og vexti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Umræðan var á margan hátt áhugaverð og á margan hátt málefnaleg og
    endaði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem við þekkjum 29. ágúst síðastliðinn þar
    sem 53% sögðu nei og 47% já, þ.e. meiri hlutinn, nokkuð rúmur eða nokkuð
    skýr, sagði nei við því að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Hins
    vegar voru, held ég, allir sammála um það, bæði þessi 47% og 53%, að allir
    vildu ná tökum á verðbólgu og vöxtum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Staðan núna í byrjun október er verri efnahagslega. Verðbólgan
    hefur farið hækkandi. Það er vandræðagangur á vinnumarkaðnum. Ég myndi
    segja að ríkisstjórnin hefði átt að setja allt sitt púður í efnahagsmálin.
    Við ættum að vera að ræða þau í dag og í kjölfar
    þjóðaratkvæðagreiðslunnar. En í staðinn kom ríkisstjórnin fram með fjárlög
    sem eru með því marki að reyna að skila hallalausum fjárlögum, sem er
    jákvætt og við hljótum öll að stefna að því í hvert sinn ef það er
    mögulegt. En eins og forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnum
    síðastliðið vor þá skyldi það gert hvað sem það kostar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við í Framsókn höfum greint „hvað sem það kostar“ og við höfum
    tekið eftir því að „hvað sem það kostar“ þýðir að tekjulægri heimili þessa
    fólks, ungt fólk með börn er að greiða 340.000 meira, eða tjón þeirra er
    340.000 að tilteknu tilliti til lána og aukinna útgjalda á ári, þ.e. á
    þessu ári og ef það tekst ekki á næsta ári að ná tökum á verðbólgunni þá
    er þetta um nærri 700.000 sem þessi ríkisstjórn er að senda reikninginn á
    tekjulægri heimili með því að viðhalda sömu krónutölu barnabóta og var
    árið 2025 þrátt fyrir umtalsverða verðbólgu, hækka sjúklingaskatta og
    meira að segja taka út vaxtabætur, sem Samfylkingin hefur þó barist fyrir
    að séu mjög mikilvægur þáttur, sem við erum sammála um, fyrir þá
    tekjulægstu án þess að það komi eitthvert annað stuðningskerfi í
    staðinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég segi bara: Þarna hefði kannski ríkisstjórnin átt frekar að
    setja fókusinn í byrjun október í staðinn fyrir að setja bókun 35 aftur á
    dagskrá eins og hún setti bókun 35 á dagskrá sem fyrsta mál í febrúar
    2025. En nei, ríkisstjórnin segist ætla að virða niðurstöðu
    þjóðaratkvæðagreiðslunnar en ekki með því að taka á stærsta málinu í
    samfélaginu þegar verðbólgan fer vaxandi, vextir hafa farið hækkandi,
    atvinnuleysi hefur vaxið og hagvöxtur minnkað. Önnur leið til að bregðast
    við þjóðaratkvæðagreiðslunni væri að draga umsóknina til baka,
    umsóknarviðræður við Evrópusambandið. Það væri, held ég, á margan hátt
    skynsamlegt og það væri, held ég, mikilvægast að allt þingið tæki þátt í
    því. Flokkur fólksins, einn af ríkisstjórnarflokkunum, hefur fimm eða
    jafnvel sex sinnum lagt fram slíka þingsályktunartillögu. En nei,
    viðbrögðin eru að setja bókun 35 á dagskrá. Þess vegna er ekki hægt annað
    en að halda hér ræðu og spyrja ríkisstjórnina af hverju það mál var ekki
    klárað í byrjun árs 2026, í janúar og febrúar og mars. Af hverju var það
    ekki klárað þá? </ns:mgr>

    <ns:mgr>En varðandi bókun 35: Hvernig verjum við EES-samninginn og virðum
    á sama tíma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar? Það er líka rétt að taka
    það upp að Evrópusambandið þarf á hverjum tíma að verja EES-samninginn
    líka. Það gerðu þeir sannarlega ekki á þessu ári þegar þeir settu tolla á
    íslenskar iðnaðarvörur. Staðan er þessi og hún er miklu flóknari en í
    byrjun árs 2026: Hótun ESA — m.a. með fyrrum formann Samfylkingarinnar í
    broddi fylkingar, það eru þrír stjórnarmenn þar — um að nú sé nóg komið og
    það eigi að draga Ísland fyrir dómstóla, íslensku ríkisstjórnina, vegna
    þess að við höfum ekki klárað þetta mál, er ekki gott innlegg inn í þennan
    tíma í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem fólkið sagði nei, í kjölfarið
    á því að ríkisstjórnin kemur síðan fram með málið og segir að það séu
    eðlileg viðbrögð að koma fram með bókun 35, að setja þá málið í farveg
    dóms. Hótanir fara illa í mig. Mér finnst að maður verði svolítið þversum
    þegar hótanir eru settar fram á sama tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo er önnur spurning: Er skynsamlegt að fara og leysa mál eða
    fara með þau fyrir þingið í miðju dómsferli? Það hefur áður komið til að
    ráðherrar Viðreisnar eða ríkisstjórnin lögðu mikla áherslu á það á
    vorþinginu 2025 að reyna að breyta búvörulögum á meðan þau voru til
    umfjöllunar á dómstigi. Það varð ekki af þeirri vegferð. Dómurinn féll og
    ekkert hefur verið gert í því að skarkast í þessum búvörulögum síðan.
    Kannski er skást að sitja þar af leiðandi á strák sínum og sætta okkur við
    það að þessi hótun ESA um að draga okkur fyrir dóm sé einfaldlega þar og
    kannski er erfitt fyrir okkur að fara hérna inn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvaða valkosti höfum við núna í október 2026? Við höfum
    klárlega þann valkost að sætta okkur við það að taka til varna fyrir
    EFTA-dómstólnum þótt hér hafi heyrst ólík sjónarmið varðandi það hér áðan.
    Við höfum klárlega þann valkost að samþykkja frumvarpið óbreytt. Við höfum
    þriðja möguleikann, að gera einhverja breytingu í meðferð málsins innan
    utanríkismálanefndar til að auka stuðning við málið, til að skýra málið
    fyrir þjóðinni, auka stuðninginn hérna inni í þinginu. Hér hugsa ég
    upphátt: T.d. mætti hugsa sér að setja inn að skylt sé að skoða hvert mál
    sem komi frá sameiginlegu EES-nefndinni með þessu tilliti. Það þyrfti
    jafnframt að setja á starfshóp til þess að yfirfara öll lög sem áður hafa
    verið sett, íslensk lög sem grundvallast á EES-rétti eða hvað annað sem
    mætti breikka stuðninginn við málið úti í samfélaginu eða hér í þinginu og
    það er verkefni utanríkismálanefndar núna þegar þessari fyrri umræðu mun
    ljúka. Það er alveg hægt að fara í meiri dýpt í málinu. Það eru skiptar
    skoðanir, bæði hér í þinginu, við höfum þegar heyrt það og þekkjum það,
    það eru líka skiptar skoðanir í samfélaginu. Það eru skiptar skoðanir í
    flokkum eins og í Framsókn t.d.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef áður fjallað um málið nokkuð ítarlega og ætla hér aðeins að
    vísa til þess að sú vegferð sem málið fékk eftir að Hæstiréttur hafði
    fjallað um málið með tilteknum hætti — það var til að mynda fengin sérstök
    greinargerð með áliti Þorgeirs Örlygssonar, sem er sannarlega fyrrverandi
    forseti Hæstaréttar og fyrrum dómari við EFTA-dómstólinn og hér í fyrri
    umræðu var talsvert mikil umræða um það hvort og þá að hvaða marki svigrúm
    löggjafans til lagasetningar verði takmarkað við upptöku á þessari útgáfu
    af bókun 35 og, með leyfi forseta, óska ég eftir að lesa upp úr
    greinargerðinni og reyndar ræðu minni líka frá fyrri tíma:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/raeda/156/rad20250606T212037.html-->

    <ns:mgr>„Verði frumvarp þetta að lögum, með hliðsjón af grundvallarreglu
    íslenskrar stjórnskipunar — að fyrri löggjafarþing geti ekki bundið hendur
    þeirra sem á eftir koma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta álit er síðan 10. maí 2023. Þetta hefur sem sagt legið fyrir
    býsna lengi. Niðurstaða álitsgerðar hans er sú að frumvarp þetta, verði
    það að lögum, takmarki í engu svigrúm löggjafans til lagasetningar og fer
    efni þess því ekki í bága við fyrrgreinda grundvallarreglu íslenskrar
    stjórnskipunar. Jafnframt hafi Alþingi fullt og óskorað vald síðar meir
    til að fella umrætt ákvæði úr gildi verði frumvarpið að lögum og setja lög
    sem ganga gegn réttilega innleiddum EES-reglum. Með öðrum orðum: Valdið er
    okkar. Það er það sem þessi álitsgerð segir …“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er eitt af því sem við þurfum að fjalla um í
    utanríkismálanefnd. Ég ætla ekki að tjá mig neitt frekar um það heldur
    vísa að öðru leyti í fyrri ræður mínar um bókun 35 á síðustu misserum og
    árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Verkefni utanríkismálanefndar er ærið ef við ætlum að reyna að
    komast í gegnum þetta og reyna að breikka stuðninginn, skýra málið, ekki
    bara hér fyrir þingheimi heldur fyrir þjóðinni allri, því að þar hefur mér
    fundist ríkisstjórninni hafa mistekist og taka málið einhvern veginn á
    dagskrá í umfjöllun þótt ég hafi ákveðinn skilning á því þar sem þetta
    getur orðið talsvert lagastagl og þá loka flestir eyrum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>