<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T16:19:23" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:21:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:19:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans framsögu.
    Við getum tekist á undir öðrum lið þar sem ég hef meiri tíma til þess að
    fara yfir efnahagsmálin og eðlilega greinir okkur á þar. Ég tel einmitt að
    það sem við erum að gera, þegar litið er á stóru heildarmyndina, þá muni
    það vera skynsamlegast fyrir ekki bara ríkissjóð heldur fyrir heimilin í
    landinu að ná hallalausum fjárlögum, ná sem fyrst tökum á verðbólgu og
    síðan að veita Seðlabankanum þann stuðning sem hann þarf til að fara í það
    að lækka vexti. Það eru að sjálfsögðu mikil samtöl í gangi við aðila
    vinnumarkaðarins. Það er svona, ég ætla ekki að segja ögurstund núna en
    við erum á ákveðnum krossgötum þessa dagana.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem ég vildi segja, af því að hv. þingmaður er náttúrlega
    reynslubolti og hefur fram til þessa viljað að við Íslendingar kláruðum
    málið á okkar forsendum, er að við getum alveg deilt um það hvenær og ekki
    og hvort það eigi að klára málið en það er alveg skýrt af hálfu þessarar
    ríkisstjórnar, ekki síst í ljósi dóma Hæstaréttar, að við viljum klára
    málið á okkar eigin forsendum, ekki bíða eftir því sem erlendur dómstóll
    segir okkur að gera heldur fara eftir mjög skilmerkilegri leiðsögn
    Hæstaréttar Íslands. Mig langar að spyrja hv. þingmann að því, hann
    verandi í stjórnarandstöðu, en hann hefur sagt að samningurinn sé einn
    mikilvægasti samningur sem við höfum gert og skilað okkur miklum
    efnahagslegum ávinningi, hvort það sé rétt að ógna þeim ávinningi af því
    að við getum gert þetta sjálf. Ég vil draga fram að mér finnst
    athyglisvert það sem hv. þingmaður segir um vinnu utanríkismálanefndar. Ég
    held að það sé eitthvað sem utanríkismálanefnd eigi að fara yfir. En ég
    vil líka vekja athygli á því að í tíð síðustu stjórnar, ég lét fletta því
    upp, þá var Framsókn í ríkisstjórn — ég heyri það að núverandi
    <ns:bjalla/> formaður Framsóknarflokksins vill ekki klára málið hér fyrir
    þinginu — þá gerði Framsóknarflokkurinn engar athugasemdir, ekki
    stjórnskipulegan fyrirvara eða annað við afgreiðslu málsins heldur
    afgreiddi það til þingsins. Hefur nokkuð breyst í þessari afstöðu hjá hv.
    þingmanni?</ns:mgr>

    <!--sagði utanríkisnefnd í bæði skiptin, laga/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>