<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:21:58" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:24:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:21:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það skiptir engu máli hvort við klárum þetta
    mál hér og nú með óbreyttum hætti eða tökum vinnu í utanríkismálanefnd til
    að ná einhverri breytingu eða farin verði dómstólaleiðin. Það verður
    alltaf okkar verkefni að klára málið eins og ég hef skilið það.
    Dómstóllinn mun ekki klára málið fyrir okkur, hann kemur bara með sína
    niðurstöðu og við þurfum að bregðast við því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi efnahagsmálin sem hæstv. ráðherra sagði að okkur greindi
    á um þá greinir okkur sannarlega á um þau. Við höfum einfaldlega sagt að
    það sé ekki eðlilegt að leggja mestu álögurnar á þá sem eru með lægri
    tekjur. Hlutfallslega sleppa breiðu bökin betur frá þessum fjárlögum
    ríkisstjórnarinnar heldur en þeir sem eru með lægri tekjur, ungt barnafólk
    á vinnumarkaði. Það eru þau sem munu þurfa að borga hlutfallslega mest,
    alveg klárlega upp fyrir sársaukamörk, svo notað sé orðfæri hæstv.
    fjármálaráðherra. Ég held að það sé alveg klárt að okkur greinir á um það.
    Við í Framsókn viljum bara leggja áherslu á að það er mikilvægt að fara að
    horfa til þess að greina niður á ákveðna hópa hvernig fjárlögin munu í
    raun og veru taka toll af þeirra möguleikum. Það er erfitt. Ég vil segja,
    hæstv. ráðherra, að við séum sannarlega á ögurstundu, ég er alveg tilbúinn
    að taka svo djúpt í árinni, ekki síst ef við horfum á stöðuna á
    vinnumarkaðnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi afstöðu mína til nákvæmlega þess hvernig þetta á að
    framkvæmast núna þá finnst mér hafa orðin ákveðin breyting við það að sú
    hótun liggur yfir okkur að ESA sé búið að hóta dómsmáli. Við í
    utanríkismálanefnd, að aflokinni þessari umræðu, verðum að taka málið til
    skoðunar út frá öllum vinklum. <ns:bjalla/> Ef það er hægt að gera
    einhverjar skynsamlegar breytingar sem auka stuðning og skýrleika gagnvart
    fólkinu í samfélaginu og hugsanlega auka stuðning hérna í þinginu þá væri
    alla vega, held ég, þeirri vinnu vel varið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>