<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-06T16:24:22" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:25:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:24:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er ágætt og ég vona að við séum að fá það
    á hreint að það eru sumir hérna sem eru tilbúnir til að standa með
    EES-samningnum og þá erum við til í samtal um það. En þetta þarf að vera
    afdráttarlausara frá stjórnarandstöðunni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins út af efnahagsmálunum, nokkur atriði: Hallalaus fjárlög
    2027, í fyrsta skipti í að verða áratug. Ríkið hættir að reka sig á
    yfirdrætti og kynda undir þenslu. Ríkisútgjöld eru að fara undir 30% af
    landsframleiðslu, það lægsta í áratug. Þetta er gert með aðhaldi í
    ríkisútgjöldum. Mesta aðhald í ríkisútgjöldum í 15 ár. Tekjur ríkisins eru
    einnig um 30% af landsframleiðslu. Það er svipað hlutfall og undanfarin
    ár. Við erum búin að fækka ríkisstofnunum um 8% á tveimur árum. Markmiðið
    er 15% fækkun fyrir lok kjörtímabilsins. Fjölgun ríkisstarfa hefur verið
    stöðvuð. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði störfum um 15 árið 2025 samanborið
    við 500 árið áður. Við erum búin að setja af stað innviðasjóðinn Göng og
    brú. Við erum búin að taka erfiðar ákvarðanir. Það er bara þannig í
    stjórnmálum, það að fara í ríkisstjórn, að fólk tekur ákvarðanir og lætur
    ekki verða eitthvert stöðnunartímabil eins og við upplifðum í sjö ár til
    að mynda í orkumálum. Við erum farin af stað með ákvarðanir í orkumálum
    til að geta haft svigrúm til að bæta og auka verðmætasköpun. Þetta er
    umræða sem ég vil gjarnan taka einhvern daginn við hv. þingmann.
    <ns:bjalla/> En ég vil gjarnan fá það á hreint hvort það sé ekki þannig að
    við séum saman í því að styðja við EES-samninginn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>