<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:26:01" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:27:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:26:01">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég er sammála hæstv. utanríkisráðherra um að
    það væri rétt að gefa okkur svolítinn tíma í umræðu um efnahagsmál og gera
    það núna kannski í staðinn fyrir að vera eyða hérna öllum deginum í þetta
    mál. Kannski er það gáfulegt. Það breytir því ekki að ríkisstjórnin er
    enn, nærri tveimur árum eftir að hún tók við völdum, uppfull af því að
    kenna einhverri fortíð um. Sjálfur settist ég í ríkisstjórn 2013 eftir
    erfiðasta tímann í hreinsuninni á efnahagshruninu og ég gagnrýndi margt á
    þeim tíma í meðförum þeirrar ríkisstjórnar en ég viðurkenndi að hún tók
    erfiðar ákvarðanir og gerði alls konar hluti. Ég held hún hafi hins vegar
    tapað heilu ári vegna þess að hún var upptekin af því að breyta
    stjórnarskránni, kollvarpa fiskveiðistjórnarkerfinu og alls konar hlutum
    sem enginn var að biðja um. <ns:frammíkall skst="GÞÞ">ESB.
    </ns:frammíkall> — Og ESB, ég var bara búinn að gleyma því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Staðan er hins vegar þessi: <ns:bjalla/> Núverandi ríkisstjórn
    hefur tapað einu ári og ég hef áhyggjur af því að annað geti tapast. En
    eftir stendur spurningin: Ef bókun 35 er svona mikilvæg í huga
    <ns:bjalla/> ríkisstjórnarinnar, af hverju var hún ekki kláruð í janúar,
    febrúar, mars árið 2026?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>