<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:27:43" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:30:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:27:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir
    ágæta ræðu og mér finnst blærinn á hans málflutningi vera í þá átt að við
    gætum jafnvel náð breiðari sátt um frumvarpið eins og það leggst út núna
    en á horfðist í byrjun. Að sjálfsögðu er það verkefni okkar í
    utanríkismálanefnd að taka það til gaumgæfilegrar skoðunar enn á ný, enda
    er það okkar verkefni. Þó að málið sé þar lagt fram í fjórða sinn þá
    byrjum við alltaf á núllpunkti og ég er áhugasöm um að heyra nánar um það
    sem hv. þingmaður telur að við gætum skoðað nánar, þó að hann hafi
    vissulega farið yfir það í ræðu sinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En fyrst við vorum að tala um ríkisfjármálin og efnahagsmálin í
    breiðu samhengi þá langar mig nú samt — ég biðst forláts ef ég fer hérna
    of langt aftur í tímann — að rifja það aðeins upp að þetta mál verður ekki
    til í neinu tómarúmi. Í fjölmörg ár hefur verið réttaróvissa um þetta mál,
    meira að segja áður en dómurinn féll í fæðingarorlofsmálinu 2024. Málið
    var fyrst lagt fram í formi frumvarps í tíð fyrrverandi ráðherra
    Sjálfstæðisflokksins, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, 23. mars
    2023, í ríkisstjórn sem hv. þingmaður sat sannarlega í sem ráðherra. Mér
    finnst alveg rétt að koma því á framfæri. Þetta geri ég af fullri virðingu
    við verkefnið sem við stöndum frammi fyrir núna, vegna þess að ég held að
    það sé alltaf tími til þess að leggja fram réttarbót sem þessa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En 23. mars 2023 voru stýrivextir 7,5%, höfðu hækkað um heilt
    prósentustig yfir nótt. Verðbólga var 10,2%. Af hverju er ég að nefna
    þetta? Er ég að núa hv. þingmanni þessu um nasir? Nei, ég er einfaldlega
    að benda á að það er nauðsynlegt að gera þessar úrbætur þrátt fyrir
    áskoranir í efnahagsmálum. Við þurfum að tryggja einsleitni, <ns:bjalla/>
    við þurfum að tryggja samræmi og eigum við nokkuð að láta það stýra okkur
    að hér sé verið að skoða að höfða dómsmál eða hreinlega að höfða dómsmál
    gegn <ns:bjalla/> íslenska ríkinu og eigum við að líta á það sem hótun?
    Eigum við ekki bara að laga þetta mál? Við erum samningsaðilar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>