<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:30:14" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:31:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:30:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er ágætt að rifja aðeins upp svona
    efnahagsstöðuna. Það er líka rétt að rifja það upp að þegar kom að
    kosningum var búið að lækka stýrivexti tvisvar og þeir lækkuðu held ég
    einu sinni enn eftir það. Eftir það fóru að renna tvær grímur á markaðinn
    og Seðlabankann og vaxtalækkunarferlið hætti. En það var á hraðri
    niðurferð hjá fyrri ríkisstjórn og svo er líka rétt að rifja það upp, af
    því að ég veit að það gleymist oft, að í lok árs 2024 var Ísland í efsta
    sæti að mati Sameinuðu þjóðanna á svokölluðum lífskjaralista.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sat í ríkisstjórn á þessum tíma sem hv. þingmaður vísar til,
    þegar þetta mál var lagt fram í fyrsta sinn, og ég studdi það að málið
    yrði klárað til þess að verja EES-samninginn. Mér finnst staðan að því
    leytinu hafa breyst, og mér finnst óþægilegt að hafa þessa hótun yfir í
    kjölfarið á þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, að hún komi fram svona stuttu
    eftir <ns:bjalla/> og ríkisstjórnin bregðist þá aftur við með því að setja
    málið á dagskrá og kalla það mikilvægt eins og hún gerði þegar það var
    fyrsta mál á dagskrá þegar ríkisstjórnin var nýbyrjuð. Mér finnst það
    óþægilegt og þess vegna finnst mér mikilvægt að við í utanríkismálanefnd
    tökum málið til skoðunar á alla kanta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>