<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:33:11" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:34:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:33:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla bara að endurtaka svar mitt við
    spurningu hæstv. utanríkisráðherra, að alveg sama hvernig málið er þá
    verðum við alltaf að klára málið. Dómsmál er bara eitt. Við höfum þrjá
    valkosti núna í utanríkismálanefnd. Það er að leggja til, eins og meiri
    hlutinn gerði hérna í byrjun desember síðastliðnum, málið óbreytt. Við
    getum reynt að finna einhverja leið til þess að breikka stuðninginn við
    málið og skýra það eða við getum bara ákveðið, þar sem ESA hefur tekið þá
    ákvörðun að sækja málið fyrir dómi á sama tíma og málið er til umfjöllunar
    hér, sem mér finnst vera hótun, já, mér finnst það, og óþægilegt, að fara
    þá leið. Og þessa þrjá valkosti höfum við til þess að fara yfir í
    nefndinni. En það breytir því ekki að það hefur enginn stjórnarliði svarað
    þessari spurningu: Af hverju, í ljósi mikilvægis málsins af hálfu meiri
    hlutans, var málið ekki klárað í janúar, <ns:bjalla/> febrúar eða mars á
    þessu ári?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>