<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:34:30" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:36:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:34:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna.
    Engu að síður þætti mér vænt um að fá skýrari afstöðu til ákveðinna þátta,
    m.a. hvort hann vilji frekar fara dómstólaleiðina eða þá leið sem hér er
    boðið upp á. Mér heyrist að hann vilji þá frekar og sé kominn á þann stað
    að vilja fara dómstólaleiðina, ef ég skil ræðu hv. þingmanns rétt. Þá
    vaknar sú spurning hvort hann telji að erlendir dómstólar muni taka
    einhverja aðra afstöðu en Hæstiréttur, sem hefur komið með skýra afstöðu
    um að það þurfi að treysta þessa bókun frekar í íslensk lög miðað við
    stöðuna núna, og hvort það sé ekki skynsamlegra að fara þá leið að vera
    með okkar útfærslu sjálf og klára málið hér í staðinn fyrir að vera með
    eitthvað sem er óklárað, treysta þar með þennan samning sem ég tel að
    flestir, en mögulega ekki Miðflokkurinn, séu sammála um að halda, þ.e. að
    treysta með þessu máli stöðu EES-samningsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>