<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:36:10" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:38:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:36:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég fór ágætlega yfir það í ræðu minni að við
    höfum þrjá valkosti. Þetta er fyrri umræða og síðan fáum við umsagnir og
    sérfræðinga inn í nefndina til að fjalla um málið og endum síðan á því,
    alla vega meiri hlutinn í nefndinni og nefndin, að leggja til eitthvað inn
    í seinni umræðuna, hvort sem það verður óbreytt frumvarp, breytt frumvarp
    eða menn segja að þar sem ESA ákvað að fara hér í dómsmál þá sé það
    skynsamlegasta leiðin. Ég ætla ekki að kveða upp um það hér í dag. Ég bara
    segi, og ég vil taka undir með hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni sem ræddi
    það, að þetta mál hefur kannski fengið óþarflega mikið vægi í umræðunni.
    Það verður að segjast eins og er að það var ríkisstjórnin sem setti allan
    þennan þunga í þetta mál. Hún setti það á dagskrá sem fyrsta mál í febrúar
    2025, kom með það aftur síðastliðið haust og kláraði það í desember, sem
    var nú óvanalegt því það var kannski ekki vitað að það yrði klárað í
    desember í fjárlagavinnunni. Síðan hafði hún allan janúar, febrúar og mars
    á síðastliðnu þingi, og jafnvel lengur, til að klára málið en þá er því
    bara hent út um gluggann. Mér finnst stjórnarliðar skulda okkur að svara
    því af hverju það var ekki gert, af hverju málið var ekki klárað ef það er
    svona gríðarlega mikilvægt núna. Það er óþægilegt í ljósi þess að það fór
    fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort við ætluðum að halda áfram
    viðræðum við ESB, að þetta séu viðbrögð ríkisstjórnarinnar við því þegar
    það bætist síðan við að ESA taki ákvörðun um að vísa málinu til
    EFTA-dómstólsins og þar, einn af þremur stjórnarmönnum, eðlilega frá
    Íslandi, situr fyrrverandi formaður Samfylkingar. Mér finnst þetta
    óþægilegt. Ég get ekki að því gert, hv. þingmaður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>