<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:38:07" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:39:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:38:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það hefur komið fram hjá hv. þingmanni að hann hafi
    lýst undrun sinni yfir því að ríkisstjórnin hafi ekki klárað málið.
    Ríkisstjórnin leggur málið fram á Alþingi og það er þá Alþingis að fara og
    klára málið. Þegar það var lagt fram síðast þá voru það 40 klukkustundir
    og 2. umræðu ekki lokið. Að saka ríkisstjórnina um að hafa ekki klárað
    málið er svolítið sérstakt þegar það hefur verið í umræðunni klukkustundum
    og aftur klukkustundum saman hér í þinginu. Það var ágætt að hv. þingmaður
    rifjaði upp fyrir mér að þetta er að koma inn í þriðja sinn. Nú eru
    eflaust sömu sérfræðingar að koma í þriðja sinn og flytja eflaust sömu
    töluna í þriðja sinn inni í utanríkismálanefnd. Samt sem áður virðist það
    vera vafa undirorpið að hv. þingmaður geti tekið afstöðu til málsins. Mér
    finnst það undarlegt og ég tel að þessi umræða hér <ns:bjalla/> sé farin
    að teygjast svolítið á langinn og það hafi allt verið sagt sem segja þarf
    í málinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>