<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:39:30" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:40:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:39:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. þingmaður gerir ekki tilraun til að svara
    því, ekki frekar en aðrir stjórnarliðar, af hverju málið var ekki klárað í
    janúar, febrúar, mars. Hann fjallar eitthvað um að það hefði verið búið að
    tala í marga klukkutíma. Það var ekkert farið að reyna á það. Það var bara
    búið að taka það út úr nefndinni í byrjun desember og ég taldi víst að það
    yrði sett á dagskrá um leið og þing kæmi saman í janúar. Það var ekki
    gert, ekki í febrúar, en síðan kom ákvörðun um eitthvað allt annað í
    byrjun mars, sem er líka áhugavert, vegna þess að hv. þm. Sigurjón
    Þórðarson er í Flokki fólksins sem hefur annars vegar verið á móti
    Evrópusambandinu hingað til og lagt fram þingsályktun fimm eða sex sinnum
    um að draga umsóknina til baka. Ég ræddi það hérna, það hefðu verið
    eðlileg viðbrögð við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hv. þingmaður
    sagði ekki orð um það, ekki orð, og svarar mér ekki einu orði um það af
    hverju málið var ekki klárað af hálfu ríkisstjórnarinnar <ns:frammíkall/>
    ef mikilvægi þess er með þessum hætti. Og af hverju kemur það inn núna
    stuttu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna <ns:bjalla/> með því fororði og þeim
    breyttu forsendum að ESA sé búið að henda málinu fyrir dómstóla á sama
    tíma? Af hverju? <ns:frammíkall/></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>