<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:41:02" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:56:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:41:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Enn einu sinni stöndum við hér og ræðum breytta
    innleiðingu á bókun 35. Ef einhver viðbrögð við niðurstöðu
    þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður að Evrópusambandinu
    í lok ágúst hefðu verið skynsamleg og yfirveguð þá eru það ekki
    þessi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því er hér haldið fram af ýmsum að það hafi verið gerð mistök
    þegar bókun 35 var innleidd með þeim hætti sem gert var strax 1993 með 3.
    gr. laga um EES. Það voru engin mistök á ferð þar. Þar var þetta gert
    nákvæmlega eins og menn áformuðu og ætluðu sér vegna þess að ef það hefði
    verið gert með þeim hætti sem til að mynda var gert í Noregi þá hefði sú
    útfærsla rekið hornin í stjórnarskrána og það voru menn fullkomlega
    meðvitaðir um. Þetta vissu allir þeir sem að þessu komu á sínum tíma,
    féllust á, útfærðu málið með þeim hætti sem hefur verið við lýði alveg frá
    upphafi og þar við sat þar til nýlega þegar, ég ætla að leyfa mér, frú
    forseti, að segja, aktívistarnir í Brussel byrjuðu að atast í íslenskum
    stjórnvöldum og oft á tíðum sérstakir sendimenn Samfylkingarinnar sem þar
    höfðu verið geymdir um stund.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er auðvitað átakanlegt að hlusta á sumt af því sem fram hefur
    komið hér í rökstuðningi hæstv. ráðherra og fylgismanna þessarar breyttu
    innleiðingar. Það er verið að hengja sig á atriði sem skipta litlu sem
    engu máli í þessu samhengi öllu. Enn blasir við sú staða sem uppi var
    þarna um 1990 að ef bókun 35 verður innleidd með þeim hætti sem hér er
    lagt til og til svipaðs vegar og gert var í Noregi þá þurfum við að breyta
    stjórnarskrá. Menn hljóta að spyrja: Af hverju ekki að verjast? Af hverju
    ekki að taka upp fullar varnir eins og þáverandi hæstv. utanríkisráðherra
    gerði árið 2020, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þá sat í því
    embætti, með lögfræðilega mjög góðum svörum til Eftirlitsstofnunar EFTA
    þar sem fram komu þau sjónarmið sem skipta svo miklu máli og alvöruvarnir
    fyrir hagsmunasjónarmið Íslands? Ég spurði hæstv. utanríkisráðherra áðan í
    andsvörum hvað af þeim rökum sem þar voru sett fram í þremur bréfum, sem
    voru send á tímabilinu frá apríl og yfir í september 2020, hefði úrelst.
    Við því kom ekkert svar og við því var svo sem ekki að búast. Staðreyndin
    er sú að það tók ár, það var áralöng barátta að fá trúnaði aflétt af
    þessum bréfum. Það gerðist síðast hér fyrir rúmu ári síðan, ef ég man
    rétt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er búið að ramma inn býsna mikilvæg og öflug sjónarmið,
    lögfræðilegar röksemdir fyrir því að það sé í fínu lagi með innleiðingu
    bókunar 35 eins og hún hefur verið frá þeim tíma að við gerðumst aðilar að
    EES-samningnum. Eins og sagði í 3. gr. laga um EES-samninginn, með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/lagas/nuna/1993002.html-->

    <ns:mgr>„Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til
    samræmis við EES-samninginn …“</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/158/s/0134.html-->

    <ns:mgr>Svona gekk þetta vel áratugum saman en þessi linnulausu bjölluöt
    núna eru farin að verða eilítið þreytandi því að áhrifin sem af þessu
    verða og sú afturvirkni sem ég vil meina að sé partur af þeirri útfærslu
    sem hér er lögð til teppaleggur með Evrópurétti yfir gildandi íslenskan
    rétt. Það er ekkert gagn að því að í því frumvarpi sem hér liggur fyrir sé
    sérstaklega tilgreint að Evrópurétturinn skuli ganga framar, eins og segir
    hér, með leyfi forseta, „nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.“ Nema
    Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Alþingi mun ekki mæla fyrir um neitt
    annað gagnvart gildandi rétti þannig að Evrópureglurnar verða rétthærri í
    einni svipan gagnvart því lagasafni öllu. Það er ekki raunhæft að reikna
    með því að við hér á Alþingi nýtum þá heimild sem þarna er svona sýnist
    manni allt að í hálfkæringi lögð til, að menn geti bara við hvert
    frumvarpið á fætur öðru tilgreint það sérstaklega að markmiðið sé að hin
    íslenska löggjöf gangi framar hinni erlendu. Vil ég í því samhengi rifja
    upp orð fyrrverandi utanríkisráðherra sem sagði í þessum efnum, með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.mbl.is/mm/greinilegur/frett/2648704/-->

    <ns:mgr>„Ef þingið ætlar sér að hafa öðruvísi reglur“ — en Evrópureglurnar
    — „þá þurfi að taka það fram og það hafi þá sínar afleiðingar.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta eru orð fyrrverandi utanríkisráðherra, ekki hv. þm. Guðlaugs
    Þórs Þórðarsonar sem situr hér í salnum. Það var engin meining, held ég, á
    bak við það setningarbrot sem ég tilgreindi hér áðan, með leyfi forseta
    aftur: „nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.“ Meiningin er bara ekki til
    staðar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það hefur verið talað ítrekað um réttaróvissu. Hv. þm. Dagbjört
    Hákonardóttir kom sérstaklega inn á það í ræðu sinni hér áðan að
    hæstaréttardómar hefðu staðfest óskýrleika í íslensku lagaumhverfi.
    Staðreyndin er sú að hæstaréttardómarnir staðfesta þetta allt saman býsna
    skýrt og fara eftir þeim lögum sem eru í gildi í landinu, og hvað þetta
    varðar er það 3. gr. EES-laganna. Það er allt býsna skýrt og hefur verið
    það, er það ekki, fyrir utan einn dóm sem var kveðinn upp árið 2003, ef ég
    man rétt. Skýrleikinn er til staðar. Það sem er verið að leggja til hérna
    er réttaróvissa og óskýrleiki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég treysti mér ekki alveg til að nefna akkúrat hvenær það var en
    ég átti hér orðaskipti við hæstv. núverandi utanríkisráðherra á einhverjum
    tímapunkti um akkúrat þetta atriði. Þá var svarið það að slíkur óskýrleiki
    yrði leiddur fram fyrir dómstólum, þannig að ríkisstjórnin er að etja
    öllum þeim sem hún segist vera að tryggja réttindi fyrir dóm til að sækja
    sín réttindi þar sem lagaákvæði stangast á hér eftir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Málflutningurinn er allur grunnur og þunnur og það var nú
    hálfsérstakt að hlusta á orðaskipti hæstv. ráðherra og hv. þm. Sigríðar Á.
    Andersen hér við upphaf umræðunnar þar sem blasti við að hæstv.
    utanríkisráðherra — ég ætla ekki að halda því fram eða fullyrða að hæstv.
    ráðherra hafi ekki lesið þá dóma sem hún vitnar svo mikið til en það var
    alla vega augljóst að skilningur hennar á áhrifum þeirra dóma og
    niðurstöðu var allur annar en gera má ráð fyrir að sá sem hafi kynnt sér
    það í þaula hafi komist að niðurstöðu um.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég verð sömuleiðis að nefna tímasetninguna núna af því að ég
    nefndi hér við upphaf ræðu minnar að viðbrögð við niðurstöðu
    atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn væru skynsamleg, flest önnur en
    það sem nú blasir við okkur. Auðvitað átti ríkisstjórnin að draga til baka
    aðildarumsóknina í beinu framhaldi en látum það liggja á milli hluta. Við
    munum örugglega ræða það hér í þinginu á seinni stigum. En það að það
    blasi við að það hafi verið eitthvert makkerí, eitthvert skipulag, samtal
    þar sem nú allt í einu mæti fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar í
    einhver hetjuviðtöl og lýsi því yfir að yfirvofandi málshöfðun ESA verði
    dregin til baka ef íslensku þingmennirnir hlýða loksins — það er ekki
    neinn bragur á þessu. Hæstv. utanríkisráðherra hefur haldið því fram hér í
    umræðunni nokkrum sinnum í dag að það sé meiri bragur á því að gera þetta
    hér heima. Ég sé að hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kinkar kolli. Ja, hver
    hefði bragurinn á því verið hefði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og
    Steingríms J. Sigfússonar fengið að klára áform sín um að afgreiða
    Icesave-málið hér heima? Þá hefði guð sannarlega þurft að blessa
    okkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrirkomulagið er eins og er, það er óljóst og umdeilt með hvaða
    hætti þetta mál skal leiða til lykta og auðvitað eigum við bara að taka
    til fullra varna, m.a. á grundvelli þeirra sjónarmiða sem sett voru fram í
    þremur bréfum hæstv. utanríkisráðherra þess tíma, árið 2020, og ramma inn
    varnir okkar og verja hagsmuni Íslands af því að niðurstaðan, hvað versta
    niðurstaða sem mögulega getur orðið fyrir þeim dómstóli er nokkurn veginn
    á pari við það sem hæstv. utanríkisráðherra leggur til í dag. En ef
    niðurstaða dómstólsins verður sú að núverandi innleiðing — sem full sátt
    var um og gerð með opin augun, meðvitað, allir aðilar við borðið voru
    sammála — það fyrirkomulag, 3. gr. EES-laganna, sé ekki fullnægjandi þá
    komum við heim og hugsum okkar gang, skoðum þörf á að breyta stjórnarskrá
    í samhengi við þetta, skoðum auðvitað allt það samstarf sem við erum í og
    undirliggjandi samninga. En við skulum ekki lyppast niður og gefast upp
    fyrir fram. Bara það að við séum að ræða þetta mál hér í dag er auðvitað
    þeirrar gerðar að það er eins og það sé sérstakt markmið að veikja stöðu
    Íslands í þessu máli sem ESA hefur hótað að höfða á hendur okkur ef það er
    ekki búið að setja það í formlegan farveg nú þegar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er auðvitað ótækt að hér séum við, að ég held, í fjórða skipti
    að ræða þetta mál og enn hafi stjórnvöld ekki gert neinn reka að því að
    greina áhrif þessarar breyttu innleiðingar á bókun 35. Auðvitað eiga
    stjórnvöld að koma hér og segja: Þetta eru atriðin sem eru til skoðunar.
    Þetta er augljóslega að rekast á. Ókei, við skulum gera þetta, við skulum
    breyta þessu regluverki, við skulum breyta þessum lögum. Engin slík
    greining hefur verið lögð fyrir þingmenn á nokkru stigi þannig að það er
    verið að biðja okkur hér um að samþykkja þessa breyttu tilhögun til þess
    að standa við skuldbindingar okkar. Við erum að standa við skuldbindingar
    okkar. Bókun 35 var innleidd með þeim hætti sem raunin er með galopin
    augun. Það voru engin mistök á ferð þar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af því að það var nú vitnað hér til Björns Bjarnasonar,
    fyrrverandi hæstv. ráðherra og hv. alþingismanns til langs tíma, áðan um
    að hann væri þeirrar skoðunar að þetta þyrfti að laga, og Björn var
    formaður utanríkismálanefndar á þessum tíma, þá minni ég á það að
    forsætisráðherra þess tíma, Davíð Oddsson heitinn, fyrrverandi hæstv.
    forsætisráðherra, sá góði maður, var þeirrar skoðunar að þetta hafi verið
    gert með fullnægjandi hætti og með galopin augun. Mér er til efs,
    þekkjandi þann mæta mann, að það hafi verið einhver misskilningur við
    ríkisstjórnarborðið í þeim efnum. Ég tel það raunar útilokað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er auðvitað partur af salamíaðferðinni, að ná okkur inn
    bakdyramegin skref fyrir skref, sneið fyrir sneið, þó að það séu auðvitað
    með þessari breyttu nálgun teknar býsna margar sneiðar í einu. En lengi
    skal manninn reyna og það er hætt að koma á óvart í raun að núverandi
    ríkisstjórn gangi fram með þeim hætti sem hér birtist sem einhvers konar
    hefnigirni. Það er verið að refsa mönnum fyrir að hafa sagt nei í lok
    ágúst. Það er átakanlegt að það birtist mönnum með þeim hætti að hér sé
    farið í einhvern innleiðingarrússíbana þar sem innleiðingarmálum fjölgar
    með áberandi hætti hér í þinginu og bókun 35 er gerð að forgangsmáli sem
    svo sannarlega voru ekki skilaboðin sem íslensk þjóð var að kalla eftir á
    sínum tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. utanríkisráðherra hefur gert mikið af því að búa til
    strámenn, gera mönnum upp skoðanir og skamma þá svo fyrir að hafa þær.
    Hæstv. ráðherra gerði mikið af því í framsöguræðu og andsvörum fyrr í dag
    og brigslar okkur Miðflokksþingmönnum m.a. um ýmislegt. <ns:bjalla/> En
    undir lok ræðu sinnar talaði hæstv. ráðherra á þeim nótum að þingheimur
    þyrfti að vita hvað menn væru að segja með afstöðu sinni. Við hæstv.
    ráðherra vil ég bara segja <ns:bjalla/> að hún getur treyst því að við
    Miðflokksmenn munum meina það sem við segjum í þessu máli. Við teljum að
    hæstv. ríkisstjórn ætti að draga þetta mál til baka. <ns:bjalla/> Þetta er
    hvorki tími, staður né stund til að ræða það. Við mætum Árna Páli og
    félögum fyrir dómi og tökum málið þaðan sem það endar í framhaldi af
    því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>