<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T16:56:48" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 16:58:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T16:56:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Ég veit að
    fólk í ábyrgðarstöðum getur svarað fyrir sig en ég vil samt minna á að það
    er fólk sem er ekki statt í salnum sem er borið brigslum um að því gangi
    eitthvað til að sinna sínu starfi fyrir Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Með
    fullri virðingu fyrir einstökum fyrrverandi stjórnmálamönnum hér á landi
    sem gegndu hér stöðu kjörinna fulltrúa, þá eru þeir ekki einráðir um það
    þegar samningsbrotamál eru höfðuð sem er langur aðdragandi að. Ég tek það
    fram að ESA opnaði þetta mál árið 2012, fyrir 14 árum. Fyrir 14 árum
    byrjuðu augabrúnir að lyftast um að hér væri að skapast eitthvað sérstakt
    réttarástand á Íslandi sem var í fullkomnu ósamræmi við gildi
    fjórfrelsisins versus það sem þekkist í Evrópu og ekki síst
    Noregi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil vekja athygli á því áður en ég kem að spurningu minni
    gagnvart hv. þingmanni og vísa til þeirra orða sem heyrast hér ítrekað frá
    fulltrúum Miðflokksins um að þetta hafi alltaf átt að vera svona, það hafi
    átt að vera skýr forgangur íslenskra reglna, alveg sama hvað. Það er ekki
    rétt. Fjórmenningarnir sem voru fengnir til að meta stjórnskipulegt gildi
    EES-samningsins á sínum tíma um bókun 35 sögðu það sérstaklega: Hér er
    ekki framselt löggjafarvald en forgangurinn er til staðar þegar EES-reglur
    eru annars vegar. Þetta er staðreynd, það er ekki hægt að vefengja þetta.
    Þetta var réttarframkvæmdin alveg til 2010. Ég vil spyrja hv. þingmann:
    Til hvers væri barist? Hver yrði ávinningur okkar af því að vinna þennan
    ólíklega sigur fyrir EFTA-dómstólnum og hvernig værum við betur
    sett?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>