<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:00:50" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:03:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:00:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið þó að ég sé
    kannski ekki miklu nær. Hér er til staðar réttaróvissa og ég ætla bara að
    standa við þá ályktun mína. Það er réttaróvissa gagnvart fjórfrelsinu, það
    nær ekki fram að ganga með sama hætti og annars staðar á EES-svæðinu, nær
    ekki fram að ganga með sama hætti og í Noregi. Það skapar vandamál fyrir
    einstaklinga, fólk og fyrirtæki í þessu landi sem nýtur ýmist ekki þeirra
    réttinda sem það á tilkall til samkvæmt EES-samningnum vegna óskýrra
    reglna sem hafa skapast í réttarframkvæmd, skýrleika sem var til staðar
    framan af og hefur vakið athygli hjá Eftirlitsstofnun EFTA í
    áraraðir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einhverjum kann að þykja málefnalegt að gera það tortryggilegt að
    hér sé fólk með feril í stjórnmálum í ábyrgðarstöðum þar eins og það sé
    einrátt um að hér sé verið að tryggja það að þátttakendur á Evrópska
    efnahagssvæðinu standi við skyldur sínar líkt og þeirri stofnun er skylt
    að gera. Ég vil bara taka það fram að sigrar hafa verið sóttir fyrir hönd
    Íslands eins og hv. þingmaður bendir réttilega á. Þá var það ekki síst
    ákveðnum ráðherrum að þakka að sá sigur náðist í svokölluðu Icesave-máli.
    Það var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem fór hnarreist til
    Lúxemborgar og gerði ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni í krafti vilja
    þjóðarinnar. Hv. þingmaður getur flett því upp hver var efnahags- og
    viðskiptaráðherra á þeim tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil hins vegar leggja áherslu á að ég er engu nær um það hver
    ávinningur Íslands yrði af því að fara og sækja meinta sigra, ólíklega, í
    Brussel, í þessu tiltekna máli. Því þarf að svara gagnvart þjóðinni. Sjálf
    vil ég standa fyrir því að leiða þetta mál í jörð og sækja öðruvísi sigra
    í Brussel í krafti öflugrar hagsmunagæslu <ns:bjalla/> þar sem við stöndum
    vörð um EES-samninginn og ræktum hann, stöndum vörð um okkar skyldur en
    treystum á það að okkar <ns:bjalla/> réttindi nái fram að ganga í krafti
    öflugrar hagsmunagæslu. <ns:bjalla/> Það eru sigrarnir sem við eigum að
    sækja. Komum fram við EES-samninginn eins og hann er en ekki sem eitthvert
    ímyndað í boði Miðflokksins.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB"> Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða
    ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>