<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:03:29" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:05:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:03:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég ætla að leyfa
    mér að nefna fjarstaddan einstakling nú sem oftar. Ég á ekki í neinum
    vandræðum með að hrósa Árna Páli Árnasyni fyrir aðkomu hans að
    Icesave-málinu. Hann stóð sannarlega í lappirnar þá og fékk litlar þakkir
    fyrir, var raunar allt að því stjaksettur af ákveðnum ráðherrum
    ríkisstjórnarinnar á þeim tíma fyrir framgöngu sína. Fyrir það ber að
    þakka og ég geri það hér með. Það hefur aldrei verið neinn feluleikur og
    ég hef gert það ítrekað á hinum ýmsu sviðum en það breytir ekki eðli og
    tímalínu þess máls sem við ræðum nú og ákvarðana sem eru teknar þar að
    lútandi. Ég veit bara að ef við hefðum klárað Icesave-málið hér heima eins
    og meiri hluti þeirra sem réðu í ríkisstjórn þess tíma vildi þá hefði guð
    sannarlega þurft að blessa okkur, eins og ég sagði áðan. En hv. þingmaður
    ítrekaði spurninguna um hvers við værum bættari ef við hrindum þeirri
    málsókn sem nú hefur verið flaggað okkur á hendur. Þá erum við með það
    íslenska regluverk sem við þekkjum og er gildandi réttur og við innleiðum
    ekki þá réttaróvissu gagnvart gildandi rétti sem mun ganga yfir verði
    tillaga utanríkisráðherra samþykkt eins og hún liggur fyrir. Það er ekki
    þannig að mig langi að fara og verjast eða að teknar verði upp varnir
    fyrir okkur bara til að taka einhvern slag þarna úti. Ég segi þetta bara
    því ég tel að það sé skynsamlegt. Rætt hefur verið í dag, og ég held að
    hæstv. ráðherra hafi sagt að það væru innan við tíu mál sem hefðu komið
    upp á öllum líftíma EES-samningsins, innan við tíu mál. Við erum hér með
    fulla dómstóla alla daga og Evrópudómstóllinn kveður upp nokkur hundruð
    úrskurði á ári. Þetta eru fá mál, fá tilvik sem við getum brugðist við ef
    pólitískur vilji er til, rétt eins og gert var gagnvart reglum um
    Fæðingarorlofssjóð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>