<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:06:04" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:21:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:06:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nú enn og aftur ræðum við bókun 35, mál sem var
    einnig á dagskrá á síðasta þingvetri og hefur verið nokkrum sinnum á
    dagskrá áður án þess að vera samþykkt. Hér í dag erum við aftur farin að
    ræða þetta mál, allt út af ESB-þráhyggju þessarar ríkisstjórnar. Þetta er
    mál sem snýr að því að reglugerðir sem við innleiðum í íslensk lög gangi
    framar lögum sem við semjum hér á landi, þ.e. reglugerðir frá
    Evrópusambandinu, EES-reglugerðir sem við erum að innleiða sem verða að
    íslenskum lögum, en það er vafi meðal sérfróðra aðila um að þetta frumvarp
    standist stjórnarskrá þannig að þetta er umræða um fullveldi þjóðarinnar
    og mögulegt valdframsal.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það hefur verið reynt að gera þetta mál að einhverju einföldu
    tæknilegu atriði, einhverju máli sem þurfi bara að klára, einhverju sem
    snúist fyrst og fremst um neytendavernd og að tryggja réttindi. En er það
    svo, og finnst okkur þetta eðlilegt? Finnst okkur eðlilegt að setja
    almenna reglu um að lög sem byggjast á regluverki frá Evrópusambandinu
    gangi framar öðrum lögum sem við höfum samið sjálf hér á Íslandi með
    hagsmuni Íslendinga að leiðarljósi? Það er spurningin sem við verðum að
    svara og henni verður ekki svarað með því að segja að þetta sé bara flókið
    og að við verðum bara að treysta hæstv. utanríkisráðherra í málinu, sama
    hæstv. utanríkisráðherra og samdi af sér varðandi makrílinn, sama hæstv.
    utanríkisráðherra og vill fyrir alla muni koma okkur í Evrópusambandið og
    er hvergi nærri hætt á þeirri vegferð, sama hæstv. utanríkisráðherra og
    fór með dylgjur og hreinar lygar um þingmenn Miðflokksins áðan, lagði orð
    í munn hv. þingmanna Miðflokksins sem áttu ekki við rök að styðjast.
    Hæstv. ráðherra gerði það hér fyrr í dag. Það var ekki málefnalegt, enda
    þegar málefni þrýtur, málefnin þrjóta, þá er oft gripið í ómálefnalega
    umræðu. Því urðum við vitni að hér fyrr í dag. Þetta er líka sami hæstv.
    utanríkisráðherra og vildi ekki að þingheimur sæi vörn Íslands í þessu
    máli, vörn sem fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra, Guðlaugur Þór
    Þórðarson, viðhafði í málinu. Það átti að fela vörn Íslands. Þetta getur
    ekki talist eðlilegt, frú forseti. Við sem sitjum á Alþingi Íslendinga
    berum ábyrgð gagnvart kjósendum og stjórnarskránni. Við getum ekki látið
    aðra taka þá ábyrgð fyrir okkur og því vonast ég til að sem flestir taki
    þátt í þessari mikilvægu umræðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessari umræðu hefur verið mikil áhersla á réttindi en lítil
    áhersla á skyldur, mikil áhersla á aukin útgjöld og minni áhersla á að
    vernda fé skattgreiðenda. En það kemur ekki á óvart. Við þekkjum það og
    það er ekkert nýtt í umræðu á Alþingi með þessa útgjalda- og skattaglöðu
    ríkisstjórn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar fyrst að ræða þá einföldun sem haldið er fram. Því er
    haldið fram að málið snúist bara um að tryggja réttindin sem evrópska
    reglugerðarverkið veitir. Réttarbót fyrir almenning, er haldið fram. Þá
    hljótum við að spyrja okkur: Af hverju gefum við okkur að í
    EES-regluverkinu felist sjálfkrafa meiri réttindi eða vernd þegar lögin
    stangast á? Það er verið að gefa sér að EES-regluverkið veiti meiri vernd
    en lög sem við semjum hér á Alþingi Íslendinga. Af hverju ættu þeir sem
    semja reglur með aðstæður í fjölmörgum öðrum ríkjum í huga að vera betur
    til þess fallnir að verja hagsmuni íslenskra borgara en þeir fulltrúar sem
    þessir sömu borgarar hafa kosið til að semja lög sem henta Íslandi og
    Íslendingum sem best?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Manni verður stundum hugsað til þess þegar við erum að eiga við
    þessa hæstv. ríkisstjórn, sem er orðin alger embættismannastjórn, að hún
    sé búin að gleyma fyrir hverja hún er að starfa. Það er fólkið í landinu,
    fólkið sem kaus þessa flokka og þetta fólk til að sitja hér á Alþingi
    Íslendinga. En í hverju málinu á fætur öðru virðast það vera
    embættismennirnir sem semja frumvörpin og láta svo hæstv. ráðherra leggja
    þau fram. Núna þegar þjóðin hafnaði áframhaldandi aðildarviðræðum við
    Evrópusambandið þá virðist þessi ríkisstjórn ekki vita hvað hún eigi að
    gera og þá er betra fyrir alla muni að láta embættismenn í Brussel vísa
    veginn því þessi ríkisstjórn virðist algjörlega ófær um það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað eru fulltrúar ríkisstjórnarinnar eiginlega að segja um eigin
    störf, fyrst þeir virðast telja að lögin sem við semjum hér þurfi almennt
    að víkja til að tryggja rétt almennings? Það er verið að segja að lög sem
    við semjum þurfi að víkja til að tryggja rétt almennings. Ef íslensk lög
    tryggja ekki nægilega góð réttindi þá lagfærum við þau. Það er verkefni
    okkar. Við finnum það sem er að og breytum því. Við þurfum ekki almenna
    forgangsreglu fyrir aðsent regluverk til að geta sinnt þeirri
    skyldu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst þessi málflutningur bera með sér afskaplega litla trú á
    getu okkar sjálfra, litla trú á því að Íslendingar geti kosið sér fulltrúa
    sem séu færir um að verja þeirra hagsmuni en mikla trú á að aðrir geti
    kosið fulltrúa til að verja okkar hagsmuni og litla trú á því að við getum
    samið lög sem henta okkar samfélagi. Ég hef meiri trú á okkur en svo og ég
    hef meiri trú á kjósendum en svo að þeir geti ekki kosið fólk til að
    starfa á Alþingi sem hugsar fyrst og fremst um þeirra hag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er sérkennilegur málflutningur hjá ríkisstjórninni og í
    þessari umræðu gleymist iðulega að þetta virkar í báðar áttir, þ.e. að þó
    að upp hafi komið tilvik eins og oft hefur verið vísað til varðandi
    fæðingarorlofsrétt, þar sem færð voru rök fyrir því að ætlun evrópska
    regluverksins hefði verið að tryggja rétt umfram það sem Alþingi hafi
    tryggt, þá auðvitað getur þetta virkað á hinn veginn líka en við munum
    ekki finna fyrir því að neinu ráði nema ef Alþingi Íslendinga ákveður að
    samþykkja þetta frumvarp vegna þess að þá er ekki hægt að treysta því að
    íslensk lög standist. Þá geta borgarar þessa lands ekki treyst því að
    íslensk lög standist ef lögin skarast. Á endanum snýst þetta allt saman um
    að við þurfum að vanda lagasetningu til að lög skarist ekki, því það getur
    ekki verið vilji neins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við getum sett þetta mál í samhengi við umræðuna um réttindi
    þeirra sem hingað koma, t.d. í leit að hæli eða óska eftir dvalarleyfi.
    Viljum við ekki geta haft einhverja stjórn á þeim réttindum? Við sjáum
    hvernig kerfin okkar eru misnotuð í dag. Myndum við vilja að ef lög
    sköruðust væri sjálfkrafa veittur aukinn réttur til þeirra sem hingað koma
    í leit að hæli þrátt fyrir vilja okkar hér á Íslandi til að ná stjórn á
    málaflokknum? Myndum við vilja það? Þetta þarf að skoðast með
    heildarhagsmuni Íslendinga að leiðarljósi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að tala aðeins meira um réttindi
    hælisleitenda og þótt þetta stangist ekki á við EES af því að við erum að
    innleiða flest óbreytt þá megum við ekki gleyma því að EES-samningurinn er
    að breytast hratt og þetta mun þá eiga við inn í framtíðina og hér er hver
    hælisleitendapakkinn að koma á fætur öðrum. Við vitum að það er von á þeim
    og hvernig mun þetta þróast? Jafnvel þótt við myndum segja að við ætluðum
    bara að láta íslensku lögin gilda þá vitum við ekki hvað er væntanlegt og
    við vitum kannski stundum ekki — það sem er vandamál í þessu er að það
    vill enginn að lögin stangist á. Það er ekki búið að fara yfir, eins og
    hv. þm. Bergþór Ólason benti á áðan, hver staðan er núna. Eigum við ekki
    að byrja á því að reyna að átta okkur á því hvort það séu fleiri lög sem
    stangast á, átta okkur á umfangi vandans? En það er engin tilraun gerð til
    að átta sig á því þó ekki væri nema ríkisstjórninni væri alvara með að
    vilja vernda þessi réttindi borgaranna. Ef ríkisstjórninni væri alvara með
    það, af hverju er hún þá ekki að fara grundigt í gegnum lagabálkinn og sjá
    hvort við höfum innleitt eitthvað með vitlausum hætti eða hvort einhver
    lög stangist á?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil líka benda á að í því máli sem hér er til
    umfjöllunar felst að það er sett afturvirk forgangsregla í íslenskan rétt
    sem felur í kjarna sínum í sér að allar þær EES-gerðir sem innleiddar eru
    hér á landi njóti forgangs umfram íslensk lög. Forgangsreglan sem hér á að
    setja í lög er tímalaus í þeim skilningi að hún gildir bæði um allar þær
    hundruð gerða sem við höfum innleitt í íslenskan rétt síðustu rúmlega 30
    ár en eins og ég sagði áðan gildir hún líka um allar þær gerðir sem við
    innleiðum í framtíðinni. Margir lögfræðingar og jafnvel embættismenn halda
    því fram að í þessari reglu felist ekkert nýtt, hér sé aðeins verið að
    gæta að lagasamræmi og meginreglum um einsleitni reglna á EES-svæðinu. Sé
    horft á málin frá þrengri Evrópuréttarfræðum má eflaust sjá réttmæti í
    þeirri skoðun. En við sem erum hér inni, stjórnmálamennirnir, höfum hins
    vegar þeim skyldum að gegna að horfa á stjórnskipunarlega og pólitíska
    hlið þessa máls. Frá þeirri hlið er þetta risastórt mál. Við mat á þessu
    frumvarpi verður líka að horfa á sögulegan bakgrunn þess. Við Íslendingar
    innleiddum nefnilega bókun 35 við lögfestingu EES-samningsins með 3. gr.
    laganna. Í þeirri grein felst túlkunarregla en ekki forgangsregla. Þetta
    er nefnilega mjög mikilvægt. Svona var þetta samþykkt á sínum
    tíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvers vegna ætli við höfum innleitt bókunina með þessum hætti?
    Jú, vegna þess að stjórnmálamenn þess tíma, þegar EES-samningurinn var
    lögfestur, settu stjórnarskrána í forgrunn. Þeir sáu að með innleiðingu
    forgangsreglu EES-réttar yrði gengið yfir hina rauðu línu 2. gr.
    stjórnarskrárinnar sem mælir fyrir um það að það sé Alþingi Íslendinga sem
    fari með löggjafarvaldið. Með öðrum orðum hefði falist í forgangsreglu
    valdframsal sem fari í bága við 2. gr. stjórnarskrárinnar. Þess vegna var
    bókun 35 innleidd sem túlkunarregla og íslensk lög skyldu túlkuð til
    samræmis við EES-reglur en ekki að EES-reglur skuli hafa forgang umfram
    íslensk lög. Bara það eitt að í því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar
    segi að Alþingi þurfi að mæla fyrir um annað ef Alþingi vill ekki að
    EES-regla hafi forgang er bein staðfesting á því að í þessu lagafrumvarpi
    felst takmörkun á löggjafarvaldi Alþingis. Sú aðferð sem við völdum til að
    innleiða bókun 35 árið 1993, sem túlkunarreglu en ekki forgangsreglu, stóð
    athugasemdalaus af hálfu ESA í 25 ár eða allt þar til formleg kvörtun
    barst frá ESA í desember 2017. Af hverju eigum við nú að beygja af þeirri
    leið sem við mörkuðum í þessu máli? Hefur eitthvað breyst? Hefur ekki
    gengið ágætlega að innleiða EES-gerðir í íslenskan rétt og kannski fullvel
    á köflum?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo ég vitni aftur í ræðu hv. þm. Bergþórs Ólasonar, hann kom vel
    inn á það að hv. fyrrverandi alþingismaður, Árni Páll Árnason, er
    nefnilega líka fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, sömu Samfylkingar
    og hefur lagt mikið á sig við að færa valdið til Brussel þannig að þeir
    sem eru að verja hagsmuni Íslendinga eru því miður kannski ekki það fólk
    sem er best til þess fallið þegar kemur að þessu máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo hefur komið fram í málflutningi þeirra sem styðja bókun 35,
    frú forseti, að það sé ekki boðlegt að borgarar þurfi að leita réttar síns
    fyrir dómstólum gegn ríkinu ef þeir njóta ekki þeirra réttinda sem
    EES-samningurinn á að veita þeim. Það sé mikill valdahalli og óréttlæti.
    Þá segi ég: Bíddu við, á það ekki bara alltaf við að borgarar eigi að geta
    treyst lögum? Lög eiga að vera skýr. Aðalatriðið hlýtur alltaf að vera,
    eins og ég sagði áðan, að vanda lagasetningu og passa að lög stangist ekki
    á. Við þurfum að finna þessa skörun og reyna að koma í veg fyrir
    hana.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú er tími minn u.þ.b. á þrotum og mig langaði aðeins að fara yfir
    það sem hæstv. utanríkisráðherra sagði hér áðan:</ns:mgr>

    <!--afritað úr ræðuskránni 140737 frá sama degi-->

    <ns:mgr>„Kerfin eiga að þjóna fólkinu, ekki öfugt.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er nákvæmlega málið. Kerfin eiga að þjóna fólkinu en ekki
    öfugt. Íslendingar eiga að geta treyst öllum íslenskum lögum, hvort sem
    það eru EES-gerðir eða lög samin hér á Alþingi Íslendinga og því er óþarfi
    að láta EES-gerðir ganga framar öðrum íslenskum lögum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>