<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:21:25" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:22:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:21:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þetta var áhugaverð ræða hjá hv. þingmanni. Það er
    greinilegt að það er eitt og annað sem situr í þegar kemur að
    Evrópusambandinu og m.a. virðist hv. þingmaður telja að þessi bókun opni
    hér á hælisleitendur í auknum mæli, ef ég gat skilið ræðuna rétt. Það ber
    að nefna það í þessu samhengi að innan Evrópusambandsins hafa þjóðirnar
    ákveðna, hvað á að segja, stjórn á þessu. Ef við tökum t.d. Pólverja og
    hælisleitendur þar og berum saman við hælisleitendur sem streyma til
    Ítalíu eða Grikklands þá er einhver munur þar á, það er ekki hægt að tala
    um þetta sem eitt. En svona almennt séð, eftir að hafa hlýtt á ræðuna, þá
    langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann sé á móti samningnum um
    Evrópska efnahagssvæðið, hvort hann vilji taka hann út af borðinu bara og
    leggja hann af.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>