<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:24:29" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:26:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:24:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Þetta er áhugavert. Hv. þingmaður er ekki á móti
    samningnum. Það ber að minna á að bókunin sem hér er um að ræða var í
    upphaflega samningnum. Það eina sem er verið að gera hér er að festa þetta
    í sessi, gera tryggara í sessi. Það sem er í samningnum er þessi bókun og
    hv. þingmaður er ekki á móti samningnum en það sem er verið að gera er að
    tryggja þessa bókun frekar í sessi, þ.e. tryggja samninginn, sem hún er
    ekki á móti þannig að hann haldi. Það er það sem er hér undir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En að öðru. Mér fannst áhugavert þegar hún ræddi hér um makrílinn
    og hún taldi að það hefðu orðið einhver mistök hvað varðar makrílinn. Mér
    finnst það áhugavert því það hefur komið í ljós núna að stærðin á
    makrílstofninum var vanmetin árin 2010–2020, það er búið að viðurkenna að
    vanmatið hafi verið upp á 200–400%. Það er ekkert smáræði. Svo sjáum við
    aftur núna að í fyrra var talið að það þyrfti jafnvel að stöðva veiðar,
    það þyrfti að grípa í neyðarhemil, en nú í ár er búið að tvöfalda veiðina
    og menn eru búnir að endurmeta stofnstærðina. Það kemur líka fram að matið
    á makrílstofninum fer ekkert fram að stórum hluta í efnahagslögsögunni.
    Myndi hv. þingmaður skoða það með jákvæðum huga t.d. að gefa makrílveiðar
    frjálsar á þeim svæðum þar sem ekki fer fram stofnmæling, sem er
    sannarlega broguð? <ns:frammíkall>En ufsinn? </ns:frammíkall>— Það kemur
    seinna. <ns:truflun> [Hlátur í þingsal.]</ns:truflun></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB"> Vinsamlegast hafið hljóð í
    salnum.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>