<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-06T17:28:22" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-06 17:40:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="13" lgþ="158" tími="2026-10-06T17:28:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="134">
      <ns:málsheiti>Evrópska efnahagssvæðið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hingað erum við aftur komin. Aftur erum við að ræða
    bókun 35 en staðan er önnur en þegar Alþingi fjallaði síðast um málið. ESA
    hefur höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Sá
    lagalegi ágreiningur sem staðið hefur árum saman er því kominn fyrir
    dómstól. Það hlýtur að hafa þýðingu fyrir það hvernig Alþingi nálgast
    málið nú. Mér finnst fyrsta spurningin því vera einföld: Hvers vegna á
    Alþingi að hraða þessu máli núna? Þetta mál kom ekki upp í síðustu viku.
    Það kom ekki upp daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. ESA gerði fyrstu
    athugasemdir sínar árið 2012. Utanríkisráðherra sagði sjálf hér á Alþingi
    í febrúar 2025 að ef málið yrði ekki afgreitt gæti það mjög líklega farið
    fyrir EFTA-dómstólinn. Samkvæmt frásögn Árna Páls Árnasonar var
    stjórnvöldum gert ljóst í vor að yrði frumvarpið ekki að lögum fyrir
    þinglok myndi ESA bera málið undir dómstólinn. Ríkisstjórnin hafði því
    ekki bara almenna vitneskju um að málshöfðun væri möguleg, hún vissi hvað
    stóð til. Samt lauk hún ekki málinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið var lagt fram vorið 2025, fór til nefndar og
    ríkisstjórnin hafði þingstyrkinn til að klára málið. Það var aftur lagt
    fram á næsta þingi, haustið 2025, í september, og nefndin lauk vinnu sinni
    og skilaði nefndaráliti 2. desember 2025. Samt var það ekki afgreitt. Ef
    málið var svona brýnt, hvers vegna var það þá ekki klárað þegar
    ríkisstjórnin hafði tækifæri til þess? Það var ákvörðun ríkisstjórnarinnar
    að klára ekki málið. Þess vegna gengur ekki að koma hingað nú, eftir að
    ESA hefur höfðað mál, og láta eins og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hafi
    skyndilega skapað neyðarástand fyrir Alþingi. Ríkisstjórnin þarf að skýra
    hvaða samskipti áttu sér stað við ESA, hvaða áhrif hún telur málshöfðunina
    hafa á frumvarpið og hvers vegna svo mikil tímapressa er nú þegar
    ágreiningurinn er kominn fyrir dómstólinn. Það er ríkisstjórnin sem hefur
    haldið á málinu og hún ber ábyrgð á því hvernig því hefur verið
    stýrt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Afstaða mín og Sjálfstæðisflokksins til
    EES-samningsins hefur ekki breyst. EES-samningurinn hefur reynst Íslandi
    vel og er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenskt atvinnulíf og íslenska
    borgara. Við eigum að standa við þær skuldbindingar sem við höfum tekið á
    okkur samkvæmt honum. En alþjóðlegt samstarf útilokar ekki lögfræðilegan
    ágreining um inntak samninga. EFTA-dómstóllinn er hluti af þeirri
    stofnanaskipan sem EES-samstarfið sjálft byggir á. Að bera ágreining undir
    þann dómstól er ekki að grafa undan EES-samningnum, það er hluti af honum.
    Við eigum að standa við okkar skyldur en jafnframt standa fast á okkar
    réttindum og verja íslenska hagsmuni. Og eitt grundvallaratriði þarf
    alltaf að vera skýrt: Það er Alþingi Íslendinga sem setur íslensk lög.
    EES-reglur taka ekki sjálfkrafa gildi hér á landi. EES-gerðir verða hluti
    íslensks réttar eftir þeim leiðum sem íslensk stjórnskipan gerir ráð
    fyrir. Núverandi frumvarp tekur aðeins til EES-skuldbindinga sem hafa
    verið innleiddar í íslenskan rétt. Við sjálfstæðismenn stöndum fast á því
    að Alþingi Íslendinga eigi síðasta orðið um þau lög sem gilda á
    Íslandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Það þarf líka að fara varlega með þá einföldu mynd að
    Alþingi þurfi nú bara að samþykkja frumvarpið og þá sé vandamálið leyst.
    Áður var teflt fram þeim rökum að með lagasetningu mætti koma í veg fyrir
    málshöfðun. Sú forsenda er ekki lengur til staðar. Málið hefur verið
    höfðað. ESA hefur óskað eftir því að EFTA-dómstóllinn taki afstöðu til
    þess hvort Ísland hafi fullnægt skyldum sínum samkvæmt bókun 35. Þá vaknar
    eðlilega spurningin: Er skynsamlegt að lögfesta nú almenna forgangsreglu
    með nákvæmlega þeirri útfærslu sem liggur fyrir áður en áhrif þessarar
    nýju stöðu hafa verið metin? Dómstóllinn mun ekki skrifa lögin fyrir
    Alþingi en dómur kann að skipta máli um forsendur umfangs
    skuldbindingarinnar og það hvernig íslensk stjórnvöld þurfa að bregðast
    við niðurstöðunni. Það viðurkennir ríkisstjórnin sjálf í greinargerð
    frumvarpsins. Við fyrri meðferð hafa líka komið fram ólík lögfræðileg
    sjónarmið um útfærslu forgangsreglunnar og m.a. hefur verið bent á
    álitaefni um réttaröryggi, fullveldi og stöðu Alþingis þegar almenn og
    opin forgangsregla er sett. Þegar Alþingi setur almennar reglu um
    innbyrðis stöðu íslenskra laga á að vanda til verka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Svo er það þjóðaratkvæðagreiðslan. Hún snerist ekki
    um bókun 35. Meiri hluti þjóðarinnar hafnaði því að aðildarviðræður við
    Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Það var niðurstaðan og hún var
    skýr og þá finnst mér líka tímabært að taka af allan vafa um stöðu Íslands
    gagnvart Evrópusambandinu. Árið 2015 tilkynntu íslensk stjórnvöld
    sambandinu að Ísland hygðist ekki hefja aðildarviðræður að nýju og að ekki
    bæri lengur að líta á Ísland sem umsóknarríki. Samt halda núverandi
    stjórnvöld og Evrópusambandið því fram að umsóknin sé enn í gildi. Þá
    skulum við einfaldlega ganga frá málinu. Við formenn
    stjórnarandstöðuflokkanna leggjum fram tillögu um að ríkisstjórninni verði
    falið að tilkynna Evrópusambandinu með skýrum og ótvíræðum hætti að Ísland
    sé ekki umsóknarríki, að engin umsókn um aðild sé til staðar og að afla
    skriflegrar staðfestingar sambandsins á því. Þjóðin var spurð hvort hefja
    ætti aðildarviðræður að nýju og meiri hlutinn sagði nei. Það væri fráleitt
    að láta á sama tíma standa óbreytt að Ísland sé áfram talið umsóknarríki á
    grundvelli þeirrar umsóknar sem viðræðurnar áttu að byggjast á. Tökum af
    allan vafa. Drögum umsóknina formlega til baka og fáum staðfest að Ísland
    sé ekki umsóknarríki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Bókun 35 er annað mál. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar fól
    ekki í sér kröfu um að ríkisstjórnin setti bókun 35 í sérstakan forgang.
    Það mál hafði verið á borði hennar löngu áður og ríkisstjórnin kaus sjálf
    að ljúka því ekki. Þá verður líka að horfa á forgangsröðun
    ríkisstjórnarinnar almennt. Verðbólgan er allt of mikil, vextir eru of
    háir og atvinnuleysi fer vaxandi. Ríkisstjórnin hefur lagt fram
    umtalsverðar skatta- og gjaldahækkanir sem leggjast á heimili og
    fyrirtæki. Efnahagsmálin eru verkefnið sem ríkisstjórnin var kosin til að
    ná tökum á. Þess vegna þarf ríkisstjórnin að svara því hvers vegna hún,
    eftir að hafa haft öll færi á að klára bókun 35, en ekki gert það, telji
    nú að einmitt þetta mál eigi að ganga fyrir með slíkum hraða. Það er
    pólitísk forgangsröðun sem ríkisstjórnin sjálf þarf að svara
    fyrir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég hef áður tjáð mig um þetta mál og ætla ekkert að
    hlaupa undan þeim orðum mínum. Ég sagði að ef ekkert yrði gert væri
    líklegt að næsta skref yrði málshöfðun gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum.
    Ég sagði líka að slíkt mál gæti haft áhrif á íslenskt réttarumhverfi og ég
    teldi rétt að reyna að leysa málið á okkar eigin forsendum. Ég stend við
    þau grundvallarsjónarmið en það sem þá var möguleg þróun er nú orðið að
    veruleika. ESA hefur þegar höfðað mál. Það breytir ekki afstöðu minni til
    EES-samningsins eða þess að Ísland eigi að standa við skuldbindingar
    sínar. En það breytir þeirri stöðu sem Alþingi þarf að meta þegar það
    ákveður hvernig rétt sé að halda áfram með þetta frumvarp.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Málið hefur verið á borði ríkisstjórnarinnar lengi.
    Hún hafði tækifæri til að ljúka því áður en mál var höfðað en valdi að
    gera það ekki. Nú er ágreiningurinn kominn fyrir EFTA-dómstólinn og
    Alþingi á ekki að láta eins og ekkert hafi breyst. Ríkisstjórnin þarf að
    svara hvers vegna hún vill hraða málinu nú og hvaða áhrif ný staða hefur á
    frumvarpið. Ríkisstjórnin þarf líka að svara því hvers vegna þetta er
    forgangsmál á sama tíma og verðbólga er of mikil, vextir of háir og
    skattbyrði heimila og fyrirtækja eykst. Væri ekki nær að einhenda sér í
    þau efnahagslegu verkefni sem ríkisstjórnin var sannarlega kosin til að
    leysa? Við eigum ekki að flýta okkur bara af því að ríkisstjórnin gerði
    þetta ekki fyrr. Við eigum að vanda okkur og við Sjálfstæðismenn munum
    áfram standa fast á því að Ísland efni skuldbindingar sínar, verji
    hagsmuni sína og að Alþingi Íslendinga hafi síðasta orðið um íslenska
    lagasetningu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>